105 réttir úr stofu 105 25. maí 2011 16:00 Margrét Þóra og Andrea. Fréttablaðið/Valli „
Það besta við starfið er að finna þakklæti nemendanna auk þess sem eintóm gleði umlykur fólkið hér í Listaháskólanum," segir Margrét Þóra Þorláksdóttir sem ásamt Andreu Guðmundsdóttur rekur mötuneyti í Listaháskóla Íslands. Nýlega var gefin út matreiðslubókin Hundrað og fimm með 105 uppskriftum úr þeirra fórum en mötuneytið reka þær einmitt í stofu 105. „Nemendur og starfsfólk skólans var oft að koma að máli við okkur og biðja um uppskriftir að hinu og þessu og hvetja okkur til að gefa út bók. Svo fannst okkur að slík bók gæti verið upplagt lokaverkefni nemanda í grafískri hönnun með áhuga á ljósmyndun," upplýsir Margrét en ritstjóri, hönnuður, umbrotsmaður og ljósmyndari bókarinnar er Rut Ingólfsdóttir. Bókinni er skipt eftir virkum vikudögum. Í mánudagskaflanum eru súpur, síðan koma koll af kolli grænmetisréttir, kjötréttir, sjávarréttir og síðan ýmislegt gott í föstudagskaflanum. „Við ákváðum strax í upphafi að bjóða upp á hollan og heimilislegan mat sem eldaður væri frá grunni," segir Margrét en þegar þær Andrea tóku við mötuneytinu fyrir um fjórum árum hafði ekki verið slíkt í skólanum í nokkur ár. Þeim vinkonum var afskaplega vel tekið og hefur hróður þeirra borist víða. „Það er alltaf að fjölga hjá okkur en í hádeginu á degi hverjum koma til okkar í kringum 50 til 70 manns," segir Margrét og tekur fram að bókin fáist í Eymundsson og víðar. solveig@frettabladid.isBarbecue-kjúklingasalatRéttur 102 í bókinni4 kjúklingabringur, skornar í litla bitasalt og pipar1 dl barbecuesósa Steikið kjúklingabitana og kryddið. Hellið sósunni út á pönnuna og látið malla í smástund eða þar til gegnumsteikt. Kælið. Salatblandað salatrauðlaukurtómatarpapríkavínber, skorin í tvenntfetaostur Blandið öllu í skál eða fat og setjið kjúklinginn saman við. Berið fram með tortillaflögum.
Kjúklingur Salat Uppskriftir Mest lesið „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Halla byrjaði á Keto, missti tuttugu kíló og hætti á gigtarlyfjunum Lífið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fleiri fréttir Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Setur heilsuna í fyrsta sæti í sumar Sjá meira