

Dagurinn minn
Eftir smá stund í veislunni, þýt ég heim til að skipta um föt, því ég er að fara í brúðkaup. Mér verður hlýtt um hjartarætur þegar ég hugsa til brúðhjónanna, svo falleg og ljúf, og gleðinni sem sat í hásæti langt fram á nótt og yndislegir borðfélagar. Í þeim hópi er ung kona er hafði fæðst á Fæðingarheimili Reykjavíkur og verið hjá mér á námskeiði þegar hún átti von á sínu fyrsta barni. Hún segir mér sögu af litla stráknum sínum – tengd tónlist – sem fer inn í hjartarætur mínar og er hvatinn að þessum skrifum mínum í dag.
Fræðimenn telja að fyrstu tvö árin í lífi barns skipti sköpum – aðrir ganga svo langt að telja að hvernig við umgöngumst barnið í móðurlífi skipti og máli – að barnið skilji meira en við gerum okkur grein fyrir. Hljómsveitarstjóri Fílharmóníunnar í Ontario segir frá því að á yngri árum hafi honum oft fundist hann þekkja tónverkin sem hann var að æfa þótt hann hefði aldrei séð nóturnar. Hann færði þetta í tal við móður sína og þá leystist gátan, hún hafði verið að æfa þessi tónverk þegar hún gekk með hann. Blaðamenn við Winnipeg Free Press upplýstu fyrir nokkru að vísindamenn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að börn sem lesið var fyrir í móðurlífi sýndu viðbrögð þegar sami texti var lesinn fyrir þau eftir fæðinguna og þannig mætti áfram telja.
Öll börn, hvar sem þau fæðast á jarðarkúlunni, ættu að eignast þá lífsfegurð sem í því felst að þeim sé sinnt ekki einungis eftir fæðingu heldur og í móðurlífi – að þeim sé sagt meðan þau eru þar, hvað þau séu elskuð! Talað, sungið, spilað og lesið fyrir þau og þeim sagt frá djúpvitrasta barni allra tíma, barninu sem fæddist í Betlehem og varðveitti hið innra með sér frið og fegurð sem hann nú og ávallt vill deila með okkur. Þetta barn – varð mesti mannvinur allra tíma. Ekkert sem hann sagði eða gerði skemmdi lífið. Hvert orð sem féll af vörum hans og hvert verk sem hann vann var lækning og lyftistöng til fegurðar og betra mannlífs.
„Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það eigi, því að slíkra er Guðs ríki.“
Á sama tíma og þessar hugleiðingar mínar fara á blað, er hópur fólks á litla Íslandi að krefjast þess, að nafn Jesúbarnsins sé ekki nefnt á nafn í skólum landsins – hvergi – eigi að þurrkast út. Ég er ekki að tala um kristniboð, en tel að þjóð, sem kallar sig kristna þrátt fyrir galla sína alla – beri skylda til að segja frá og kynna fegurðina sem felst í sögunni um Jesúbarnið og lífsviskuna sem felst í sögunum sem Kristur sagði sem fullorðinn maður og kynna þannig þá lífskúnst og lífsdýpt sem í orðum hans felast og þá fegurð sem af þeim hefur leitt til betra og bættara mannlífs.
Það þarf ekki annað en horfa á einfaldan fréttatíma til að sjá hversu mjög okkur hefur rekið frá þeirri heillandi lífssýn, sem felst í djúpstæðum en þó svo einföldum kærleiksboðskap mannsins frá Nazaret, að þú og ég virðum og þyki vænt hvoru um annað, þar í liggja svörin til betra mannlífs. Vöntun á þeirri lífskúnst hefur komið til vegar vandamálum af stærðargráðu sem við ráðum hreint ekkert við.
Jesús Kristur var ekki aðeins „besti vinur barnanna“ eins og stendur í sálminum. Hann var vinur allra. Hann var vinur og verndari kvenna, talaði við þær sem jafningja, leiðbeindi þeim og hughreysti, varði þær gegn ásakendum og svaraði fyrir þær: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steininum.“ Hann var laus við dulúð, kom beint að efninu í orði og verki, sem allir gátu skilið, var vinur lítilmagnans en einnig þeirra ríku sem óskuðu eftir nærveru hans. Jarðnesk gröf hans var gjöf frá einum slíkum.
Boðskapur Krists var ekki flókinn, hann var list í lífsleikni eins og hún best getur orðið. Þess vegna má ekki taka frá yndislegum börnum okkar að kynnast þessum listræna mannkærleiksboðskap. Við getum ekki tekið afstöðu til þess sem við höfum aldrei kynnst! Guð blessi börn og foreldra þessa lands og hjálpi okkur að tileinka okkur það fegursta sem lífið hefur upp á að bjóða.
Lifið heil
Skoðun

Dýravernd - frumbyggjahættir
Árni Stefán Árnason skrifar

Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota
Magnús Guðmundsson skrifar

Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi
Snorri Sturluson skrifar

Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu
Guðjón Sigurbjartsson skrifar

Sjómenn til hamingju!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Leyfum mennskunni að sigra
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Fjölskyldan fyrst
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Hvað er markaðsverð á fiski?
Sverrir Haraldsson skrifar

Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda
Anna Karen Svövudóttir skrifar

Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt
BIrgir Dýrfjörð skrifar

Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað?
Valentina Klaas skrifar

Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti
Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar

Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna
Berit Mueller skrifar

Þjóðarmorð – frá orðfræðilegu sjónarmiði
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi?
Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Þakkir til starfsfólk Janusar
Sigrún Ósk Bergmann skrifar

Mun gervigreindin senda konur heim?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Frá, frá, frá. Fúsa liggur á
Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Nokkur orð um stöðuna
Dögg Þrastardóttir skrifar

Kynbundinn munur í tekjum á efri árum
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

#blessmeta – þriðja grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvernig tryggir þú stærstu fjárfestingu lífins?
Berglind Halla Elíasdóttir skrifar

Ritunarramminn - verkfæri fyrir kennara!
Katrín Ósk Þráinsdóttir skrifar

Feluleikur Þorgerðar Katrínar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ráðalaus ráðherra
Högni Elfar Gylfason skrifar

Spólum til baka
Snævar Ingi Sveinsson skrifar

Sögulegur dómur Hæstaréttar – staðfestir sjálfstæði Alþingis
Erna Bjarnadóttir skrifar

Að vera fatlaður á Íslandi er full vinna
Birna Ösp Traustadóttir skrifar

Sæluríkið Ísland
Einar Helgason skrifar