Eigandi Lúkasar sagði í júlí 2007 að einhverjir einstaklingar hafi sett Lúkas í íþróttatösku og sparkað henni sín á milli þangað til hann hætti að öskra. „Þegar þar kemur við sögu fer þetta vitni bara í burtu og taldi að hundurinn væri dauður."
Viðbrögðin voru ótrúleg kertafleytingar og minningarvökur voru haldnar á Akureyri og í Reykjavík og hinn meinti hundaníðingur, Helgi Rafn var gjörsamlega tekinn af lífi í bloggheimum og það hafði afleiðingar í för með sér.

Málið var flutt í Héraðsdómi Reykjaness um miðjan nóvember á síðasta ári. En vegna anna dómara þurfti að endurflytja málið eftir jól. Á dagskrá dómsins kemur svo fram að dómsuppsögu væri að vænta á morgun, en í samtali við lögmann Helga fengust þær upplýsingar að uppsögunni hefði verið frestað um nokkra daga.
Helgi krefst þess að Þóra Kristín Hjaltadóttir greiði sér hálfa milljón króna í miskabætur fyrir fern ummæli sem hún birti á heimasíðu sinni þegar málið stóð sem hæst. Alls hefur lögmaður Helga sent átta aðilum, sem lengst gengu í meintum níðskrifunum á netinu, bréf með boði um að ljúka málinu með sátt og greiðslu 500 þúsund krónur í skaðabætur.
Einn aðili sættist á þau málalok. En til greina kemur að stefna þeim sjö sem eftir eru og krefja þá um skaðbætur. Hafi Helgi betur í þessu meiðyrðarmáli verður hinum stefnt samkvæmt upplýsingum frá lögmanni Helga. Því er ljóst að Lúkasarmálinu er hvergi lokið.