Körfubolti

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Leikmenn Olympiacos fagna í kvöld.
Leikmenn Olympiacos fagna í kvöld.
Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslitaleik gegn CSKA Moskva.

Rússarnir voru mest með 19 stiga forskot í leiknum en Grikkirnir komu til baka og unnu með einu stigi, 62-61.

Sigur Olympiakos kom nokkuð á óvart en félagið hefur ekki sama fjármagn á milli handanna og CSKA og teflir því fram mun ódýrara liði. Það er samt ekki allt í íþróttum eins og margoft hefur sannað sig.

CSKA var 13 stigum yfir eftir þriðja leikhluta, 53-40, en lokasprettur gríska liðsins var magnaður. Þeir unnu leikhlutann 22-8 með frábærri vörn og baráttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×