Íslensk mörk í mikilvægum sigri Halmstad Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. ágúst 2012 19:13 Guðjón Baldvinsson.
Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson voru báðir á skotskónum þegar að Halmstad vann mikilvægan 3-0 sigur á Brommapojkarna á útivelli í sænsku B-deildinni í dag. Guðjón skoraði fyrsta mark Halmstad á 14. mínútu og var það hans fjórtánda mark á tímabilinu. Hann er markahæsti leikmaður sænsku B-deildarinnar. Honum var skipt af velli á lokamínútum leiksins. Kristinn Steindórsson spilaði allan leikinn og skoraði þriðja og síðasta mark Halmstad í blálok venjulegs leiktíma. Hann er nú kominn með sex mörk á tímabilinu. Halmstad er í þriðja sæti deildarinnar með 41 stig og er nú einu stigi á eftir Brommapojkarna, sem er í öðru sæti. Öster er langefst á toppi deildarinnar með 54 stig. Í sænsku úrvalsdeildinni tapaði Sundsvall fyrir Malmö á útivelli, 2-0. Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Sundsvall en Jón Guðni Fjóluson, sem gekk til liðs við félagið fyrir helgi var ekki í leikmannahópnum. Åtvidaberg og Norrköping gerðu 1-1 jafntefli og spilaði Gunnar Heiðar Þorvaldsson fyrstu 75 mínúturnar í síðarnefnda liðinu. Norrköping er í sjötta sæti deildarinnar með 30 stig en Sundsvall er í því tíunda með 24 stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, píla, snóker og fótbolti Sport Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Ingibjörg á skotskónum og Cecilía Rán varði víti og hélt hreinu Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Sævar Atli skoraði og fiskaði mikilvægt víti fyrir Lyngby „Velkomin í dal draumanna“ Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Barnið þriggja vikna þegar mamman kom inn á og varð sænskur meistari Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ Juventus vann grannaslaginn „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Tvær breytingar á landsliðshópnum Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Milan missteig eftir sigurinn frækna á Real Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð Hermann Hreiðars tekur við HK Bayern jók forystuna á toppnum á meðan Dortmund og Leverkusen töpuðu stigum Sjá meira