Körfubolti

Treyja Shaq verður hengd upp í rjáfur hjá Lakers

Shaq með Kobe Bryant.
Shaq með Kobe Bryant.
Það er nóg að gera á skrifstofu LA Lakers þessa dagana enda ætlar félagið að heiðra gamlar hetjur í vetur fyrir þjónustu sína við félagið.

Eins og áður hefur verið greint frá þá mun Kareem Abdul-Jabbar fá styttu fyrir utan Staples Center og svo munu treyjur tveggja leikmanna verða hengdar upp í rjáfur í vetur.

Það eru treyjur þeirra Shaquille O'Neal og Jamaal Wilkes. Treyja Wilkes númer 52 mun fara upp þann 28. desember en shaq fær sinn dag þann 2. apríl.

Wilkes lék í sjö tímabil með Lakers og hefur verið tekinn inn í heiðurshöll körfuboltans.

Shaq spilaði í átta ár með Lakers og vann þrjá titla með félaginu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×