Körfubolti

Jón Arnór og félagar byrja vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
CAI Zaragoza hafði betur gegn Caja Laboral í fyrstu umferð tímabilsins í spænsku úrvalsdeildinni í kröfubolta. Zaragoza vann, 88-75.

Jón Arnór Stefánsson skoraði ellefu stig fyrir Zaragoza í leiknum og var meðal stigahæstu manna í sínu liði. Hann spilaði í 23 mínútur og gaf eina stoðsendingu í leiknum.

Þá kom Haukur Helgi Pálsson lítið við sögu þegar að Assignia Manresa tapaði á útivelli fyrir Blusens Monbus, 83-78.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×