Körfubolti

Howard byrjaður að æfa með Lakers

Fjölmiðlar hafa smá áhuga á Howard.
Fjölmiðlar hafa smá áhuga á Howard.
Dwight Howard tók þátt í sinni fyrstu æfingu með LA Lakers í gær en hann hefur verið að jafna sig eftir aðgerð á baki.

Æfingin gekk mjög vel hjá Howard og virðist vera í fínu lagi með bakið á honum.

"Það kom mér ekki á óvart enda hef ég lagt hart að mér til þess að komast af stað. Ég mun gera það áfram og vonandi kemst ég sem fyrst út á völlinn," sagði Howard.

Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær Howard spili sinn fyrsta leik með liðinu. Hann þarf að æfa í einhvern tíma áður en hann fer að spila.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×