

Heillandi möguleikar
Framundan er tími páska og upprisu. Ég hvet til vorverka kirkjustarfs. Ég vil þjóna kirkju vonar og gleði og býð fram krafta mína til biskupsþjónustu.
Fjölþætt reynsla í kirkjustarfiÉg hef þjónað sem prestur í sveit og borg og starfað við kirkjulega stjórnsýslu. Ég var rektor Skálholtsskóla og breytti starfi hans í menningarmiðstöð kirkjunnar. Eftir fræðslustarf á Þingvöllum stýrði ég átaki þjóðkirkjunnar í safnaðaruppbyggingu og var verkefnisstjóri guðfræði og þjóðmála á Biskupsstofu. Þá mótaði ég og leiddi samkirkjustarf á Íslandi og erlendis. Ég sit á kirkjuþingi og er varafulltrúi í kirkjuráði. Síðustu átta ár hef ég þjónað sem prestur í stórum og líflegum Nessöfnuði í Reykjavík. Ég hef verið virkur í umræðu um samfélags- og kirkjumál og unnið í hljóðvarpi. Ég hef áhuga á nútímamiðlun, skrifa reglulega um trú og menningarmál í tímarit og blöð og birti ræður mínar og greinar gjarnan á vefnum.
Ég er hamingjumaður í einkalífi, á fimm börn á aldrinum 6-27 ára. Kona mín er Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur. Ég er fjárhagslega, pólitískt og félagslega óháður.
Ég lærði guðfræði á Íslandi, í Noregi og í Bandaríkjunum, er cand. theol. frá HÍ og lauk meistara- og doktorsnámi frá Vanderbiltháskóla í Bandaríkjunum. Doktorsritgerð mín, Limits and Life, fjallar um myndmál í trúarhefð Íslendinga og sýnir tvær ólíkar víddir íslenskrar trúarsögu. Menn geta brugðist við kreppum með ábyrgð eða lagt á flótta. Íslensk trúarhefð hvetur til ábyrgðar, sem ég axla, prédika og túlka.
Í þágu fólks í kirkju, á götum og torgumÉg virði en hræðist hvorki andóf gegn kirkju né trúargagnrýni. Áskoranir vekja, ögra trú og kalla á frjóa guðfræði. Kirkjan á ekki að einangrast, heldur vera og tala frjáls á götum og torgum mannlífs, miðla gildum og beita sér til góðs í réttlætismálum. Ræða trúarinnar á að vera til upplífgunar, til trúar á Guð og þjónustu við menn.
Fyrstu verkefni mín í biskupsstarfi yrðu þrjú:Í fyrsta lagi að kalla barnafræðara kirkjunnar til átaks í þágu barna og barnafjölskyldna. Börnin eru dýrmæti og einnig framtíð kirkjunnar.
Í annan stað að beita mér fyrir að söfnuðir þjóðkirkjunnar fái sóknargjöld sín með góðum skilum. Þau ættu að hækka meira en þriðjung.
Í þriðja lagi að hefja græðarastarf innan kirkjunnar með því að hafa sem nánast samstarf við presta, djákna og sóknarnefndarfólk um land allt. Þetta forystufólk kirkjunnar þarf að næra og hlúa að. Glatt fólk þjónar vel.
Ég tel að ást mín á kirkjunni, mannvirðing, menntun, persónueigindir og staðfesta geri mér fært að vinna vel að verkefnum þjóðkirkju á tímamótum. Ég býð mig fram til að þjóna, sætta og hvetja þjóðkirkjufólk til sóknar. Möguleikar kirkjunnar eru miklir og heillandi.
Skoðun

Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ
Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar