

Ekki var Huang gerður strámaður
„Á næstu þremur til fjórum árum hyggst hann byggja upp 120 herbergja lúxushótel á Grímsstöðum, golfvöll og hestabúgarð og í Reykjavík tvöfalt stærra lúxushótel. Þá er hann að spá í flugfélag til að flytja fólk á milli hótelanna. Þetta á að verða heilsársrekstur ... Hann sér fyrir sér að Ísland verði næsta ferðamannaparadís heimsins en þarna er verið að tala um tíu til tuttugu milljarða fjárfestingu, segir Hjörleifur."
Þessi furðufrétt varð til þess, að ég og aðrir fórum að greina þessi óvæntu fjárfestingaráform í víðara samhengi kínverskrar utanríkisstefnu og umsvifa erlendis. Í Fréttablaðinu 23. maí hefur Hjörleifur áhyggjur af því að ég sæki fróðleik í einhverja Gróu á Leiti. Þá er rétt að árétta að vinnulagið sem lærist í utanríkisþjónustunni er einmitt til þess fallið að gera sjálfstæðar greiningar á efnahagslegri og pólitískri þróun. Eitthvað hlýt ég að hafa lært í slíku á langri starfsævi.
Það er reyndar býsna auðvelt, en stundum tímafrekt, að fá yfirsýn yfir þróunina í Kína. OECD og Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn leggja til frábært efni fyrir þá sem eru læsir á hagskýrslur. Vikuritið Economist er ómissandi og sömuleiðis kínverska sjónvarpið CCTV News og vefsíður þeirra. Á netinu eru ókjör upplýsinga um landið frá prentmiðlum, alþjóðastofnunum og þekktum greiningarstofnunum. Og ekki vantar góðar bækur um Kína á Kindle og fyrir iPodinn. Allt þetta nota ég og eftirlaunamaður hefur góðan tíma fyrir sín áhugamál.
Heimildir mínar eru sem sagt upplýsingar, sem liggja fyrir og af þeim dreg ég mínar eigin ályktanir. Varðandi Kína, norðurskautið og Ísland er það auðvelt. Áform Huangs voru að öllum líkindum tilraun kínverskra stjórnvalda eða hersins að ná framtíðar fótfestu á Íslandi. Hvenær það gæti komið sér vel væri óráðið en Kínverjar hugsa til langs tíma. Að festa sér land á norðaustur hluta Íslands til 99 ára væri fyrirhafnarlaus landvinningur.
Það er greinilega sárt fyrir Hjörleif að sjá vin sinn Huang í nýju fötunum keisarans. Hjörleifur fullyrðir að ég geri vin hans að strámanni eða eins konar saklausum Grýlukarli að okkar málhefð. Það er gamalt áróðursbragð að snúa sannleikanum við. Þegar ég sýni raunveruleikann í þessu fjarstæðukennda Grímsstaðamáli, þá er málinu snúið við og hið rétta gert að lygi. Þetta er reyndar gamalt kommatrikk, sem Hjörleifur hefur vitaskuld aldrei lært. Ég hlustaði á Huang á CCTV News stæra sig af því að hann hefði haft betur í viðureign sinni við innanríkisráðherra Íslands. Ég sagði að þetta væri með öllu óaðgengileg framkoma erlends ríkisborgara í garð íslensks ráðherra.
En af hverju ætti annars nokkur að hafa trúað þessari jólasögu á hásumri um þróun ferðaþjónustu á Hólsfjöllum þar sem óþekktur Kínverji leikur aðalhlutverkið?
Var hægt að fá nokkurt vit í það skilyrði að fylgja skyldu til eignar mörg hundruð ferkílómetrar lands? Og svo yrði hótelið tengt með eigin flugsamgöngum við Reykjavík. Átti flugvélakosturinn annars ekki að koma frá kínverska flughernum? Af hverju var reynt að telja fólki trú um að einmitt þarna í auðn, einangrun og illviðrum vetrar, væri hægt að reka lúxushótel allan ársins hring? Já, því ekki að hafa golfvöllinn bara á Vatnajökli? Og við skulum ekki vera með neinn barnaskap um að Huang, rétt eins og aðrir kínverskir „auðjöfrar", er settur í þá stöðu í miðstýrðu efnahagskerfi. Ekkert slíkt gerist í Kína nema að fenginni blessun flokks og ríkis.
Óþarfi er að rekja fyrir Íslendingum ömurlega fortíð Alþýðulýðveldisins Kína á dögum Maós. Við segjum það liðna tíð og fögnum því Kína sem síðar tók við. Þar er rekinn ríkiskapítalismi með undraverðum árangri hagvaxtar og aukinnar velmegunar enda eru viðskiptamöguleikar góðir. En Kína er miðstýrt einræðisríki sem virðir ekki mannréttindi sem við hljótum að harma og mótmæla. Þá er Kína mjög að sækja sig í veðrið sem kjarnavopnavætt hernaðarstórveldi, einnig með öflugan herflota. Kínverjar eiga í deilum um lögsögu við öll löndin í Suður-Kínahafi, sem eiga varnarsamstarf við Bandaríkin. Þar kynni að slá í harðbakkann.
Engum getur dulist að Kínverjar sækja í auðlindir norðurskautsins og þeir munu stunda siglingar í stórum stíl um norðaustur leiðina um pólinn, – siglingaleið sem er að opnast. Þeir hafa sóst eftir umskipunarhöfn í Norður-Noregi en það mál féll niður enda andar köldu frá Kína í garð Norðmanna fyrir það uppátæki að hafa veitt kínverskum andófsmanni friðarverðlaun Nóbels.
Hvaða bull er þetta eiginlega að ég sé að gera strámann úr Huang þegar verið er að sýna hann og þessi mál eins og þau eru: Íslendingum óaðgengileg. Milligöngumaður hans, Hjörleifur Sveinbjörnsson, gæti gert okkur öllum þann stórgreiða að telja vin sinn á að láta Íslendinga í friði.
Tengdar fréttir

Slegist við strámann á Fjöllum
Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðanir, rökræða ekki, sýna viðmælanda ekki virðingu, hlera ekki eftir andstæðum sjónarmiðum. Þess í stað eru mál afflutt, teygð og toguð og sá málstaður afskræmdur sem manni er ekki að skapi. Svo fljúgast menn á við strámanninn sem þeir búa til úr afskræmingunni.
Skoðun

„Ef hún hefði haft val, hefði konan mín þá kosið að láta heilabilunina hafa sinn gang?”
Ingrid Kuhlman skrifar

Réttlát leiðrétting veiðigjalda
Elín Íris Fanndal skrifar

Að vera eða ekki vera – hvað er raunverulegur árangur?
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,Inga Hlín Pálsdóttir skrifar

Heiðmörk: Gaddavír og girðingar
Auður Kjartansdóttir skrifar

Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

#blessmeta - önnur grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvers virði er lambakjöt?
Hafliði Halldórsson skrifar

Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð
Elín Íris Fanndal skrifar

Þjóðareign, trú og skattar
Svanur Guðmundsson skrifar

Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt?
Einar G Harðarson skrifar

Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar

Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan
Njáll Trausti Friðbertsson skrifar

Opið bréf til stjórnvalda
Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar

Við skuldum þeim að hlusta
Ólafur Adolfsson skrifar

„Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv.
Flosi Þorgeirsson skrifar

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar