Söngvari Bombay Bicycle Club á Hressó 19. júní 2012 12:00 Þorbjörg og Jack Steadman flytja smelli Bombay Bicycle Club í bland við frumsamið efni Þorbjargar á Hressó annað kvöld. Fréttablaðið/Ernir „
Við ætlum að fá innblástur frá náttúrunni," segir Jack Steadman, söngvari þekktu indírokk-hljómsveitarinnar Bombay Bicycle Club sem heldur tónleika í Hressingarskálanum ásamt tónlistarkonunni Þorbjörgu Ósk Eggertsdóttur annað kvöld. Tónleikarnir verða órafmagnaðir og munu þau flétta tónsmíðar sínar saman. „Svo verður eitthvað óvænt sem kemur út úr æfingaferð til Vestmannaeyja." Þorbjörg er fyrrverandi meðlimur hljómsveitarinnar Mukkaló og kynntist Steadman þegar hann spilaði á Iceland Airwaves haustið 2010. „Meðlimir Mukkaló komu til kærustunnar minnar og sögðust vera að spila á tónleikum, sem við mættum á og þeir voru snilld." segir hann og leggur áherslu á orðið „snilld" með að segja það á íslensku. „Ég og kærastan mín keyrðum svo út á land með þeim síðasta kvöldið okkar. Við fórum að Seljalandsfossi og vorum þar allt kvöldið," segir hann gáttaður yfir íslenskri náttúrufegurð og þá sérstaklega birtunni á sumrin. „Ég kom út af skemmtistað í fyrrinótt klukkan eitt og fríkaði alveg út." Hann bætir við að Íslendingar hafi meiri tíma fyrir vikið og að hann hafi blásið á áhyggjur Þorbjargar af litlum æfingatíma þar sem þau hefðu tvöfalt meiri tíma því það yrði aldrei dimmt. Í framhaldi af kynnum Bombay Bicycle Club og meðlima Mukkaló fyrr um árið spilaði Mukkaló með þeim á tveimur tónleikum í Queen Elizabeth Hall í London í desember 2010. Spurður um gang mála hjá bresku sveitinni svarar hann: „Við höfum verið að spila mikið og erum að byrja að semja fyrir fjórðu plötuna okkar, sem er væntanleg eftir ár." Tónleikarnir hefjast í Hressingarskálanum í Austurstræti klukkan 22 og er aðgangur ókeypis.- hþt
Tónlist Mest lesið Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Lífið Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Lífið Langaði í fleiri ævintýri og fluttu því frá Íslandi Lífið Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé Lífið Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Lífið Silfurrefurinn George Clooney á bak og burt Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Fleiri fréttir Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira