Fyllir í skarð Ingó Veðurguðs 7. júlí 2012 09:00 Benedikt Sigurðsson kemur fram með Veðurguðunum í kvöld í Bolungarvík en hann er svo sannarlega skemmtikraftur af guðs náð.MYND/HALLDÓR sVEINBJÖRNSSON "
Uppáhaldslagið er Bahama," segir Vestfirðingurinn Benedikt Sigurðsson en hann fékk Veðurguðina til að spila með sér á lokaballi Markaðsdaga í Bolungarvík, sem fer fram í kvöld. Hann mun því syngja prógramm sveitarinnar í stað Ingólfs Þórarinssonar, eða Ingó Veðurguðs. Benedikt sér jafnframt um brekkusöng bæjarhátíðarinnar og er greinilega einn helsti skemmtikraftur Bolungarvíkur þó hann svari spurningu þess efnis hógvært: „Eru ekki allir skemmtikraftar á sinn hátt?" Það er allavega víst að hann hefur troðið upp á fleiri stöðum en flestir og segist ekkert hafa þurft að æfa fyrir ballið. „Ég sendi þeim lagalistann og það verður bara talið í." „Ég hef nú örugglega sungið á fleiri hundruð böllum út um allt land með hljómsveitinni Express en ég hef verið í henni í mörg ár," segir hann um reynslu sína og bætir við að hann spili einnig með sveitinni Vestfirðingur ársins sem er skipuð meðal annarra tveimur fyrrum handhöfum nafnbótarinnar að honum meðtöldum. „Við ætlum að láta Mugison spila með okkur einhvern tímann en hann var einu sinni Vestfirðingur ársins. Það endar með því," segir Benedikt sem hlakkar til kvöldsins og spáir mikilli stemningu. „Ég lofa brjáluðu stuði. Við verðum vonandi að spila til sjö um nóttina nema löggan stöðvi ballið." - hþt
Tónlist Mest lesið Strípibúlluást sem hleypir öllu í háaloft Gagnrýni „Var mjög sár og reið út í hann þegar ég sá hann“ Lífið Tugtaður til í kaþólskum einkaskóla Lífið Rikki G á stórafmæli: „Ég er bara að fara að grenja“ Lífið Opnar umboðsskrifstofu með Gumma kíró Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Eftirminnilegast að hitta Loreen Lífið Versace stígur til hliðar eftir áratugastarf Tíska og hönnun Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Tónlist Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Fleiri fréttir Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira