Hafnar amerískum þætti en vill syngja í Eurovision 2. ágúst 2012 12:00 Leoncie tekur ekki í mál að taka þátt í undankeppni Eurovision. Hún er afar sigurviss ef hún fær tækifærið en Páll Magnússon bendir henni á að senda lag í keppnina eins og aðrir.
Leonice hefur sent frá sér nýtt lag. Þá biðlar hún til RÚV að fá að fara fyrir Íslands hönd í Eurovision. „Ég þarf ekki að stefna ferli mínum í hættu til þess að vera fræg," segir söngkonan Leoncie hneyksluð á samningi sem framleiðendur bandarísku þáttanna Off Beat vildu láta hana undirrita í síðustu viku fyrir að birta myndbönd hennar í þættinum. „Þeir vildu fá höfundarrétt á lögunum mínum og öllu því sem ég myndi gera í framtíðinni. Þetta var hættulegur samningur," segir Leoncie en miklir annmarkar voru á samningnum og neitaði hún að skrifa undir. „Ég mátti ekki fara með Viktor með mér. Þeir vita að ég hef verið gift í þrjátíu ár og fyrst ég get ekki farið með Viktor fer ég ekki," segir hún. Off Beat sýnir fyndin og hneykslandi tónlistarmyndbönd og er einn aðalframleiðandinn Vin Di Bona, hugmyndasmiður American Funniest Home Videos. „Þátturinn er blanda af tónlist og gríni og þeir vildu sýna öll myndböndin mín af Youtube," segir Leoncie. „Ég myndi verða þræll fyrir þá til framtíðar ef ég væri fáviti eins og margir sem fara til Bandaríkjanna og fórna eiginmönnum fyrir frægð. Guði sé lof að ég er ekki svona örvæntingarfull," segir hún um áhrif samningsins. Framleiðendurnir tjáðu henni að allir sem kæmu í American Funniest Home Videos hefðu skrifað undir samninginn. „Þeir sögðu að ég væri fyrsta manneskjan af milljónum til að neita að skrifa undir."Myndband við nýtt lag hennar, Gay World, kom út í vikunni og gaf hún út samnefnda plötu á dögunum. „Ég samdi Gay World því ég hef spilað fyrir fólk í London sem er hamingjusamt eða „gay" og þá hefur verið troðfullt og allir kunnað textana mína," segir hún glöð. Leoncie hefur hug á að verða næsti fulltrúi Íslands í Eurovision. „Ég sendi bréf til Páls Magnússonar. Ég hef samt ekki áhuga á að einhver dæmi mig því ég er alþjóðlegur fyrsta flokks skemmtikraftur. Af hverju þurfa skattgreiðendur að borga fyrir keppni þegar hægt er að velja eina manneskju og það er skýrt að ég mun sigra?" segir hún. Páll Magnússon, útvarpsstjóri, sá vefpóstinn frá Leoncie í fyrradag. „Ég sagði að það væri meira en sjálfsagt að hún tæki þátt í forkeppninni og hvatti hana til þess." Hann kannaðist þó ekki við að Leoncie hefði beðið um að vera valin án þátttöku í Söngvakeppni sjónvarpsins. hallfridur@frettabladid.is
Tónlist Mest lesið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Lífið Fleiri fréttir Ísland á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision Lét sig dreyma um Eurovision á Húsavík Björk mætir á stóra skjáinn Gítarleikari Whitesnake fallinn frá Upprunalegt handrit „Mr. Tambourine man“ seldist á 70 milljónir Heill hljóðheimur Hildar fer afturábak Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Troðfylltu Iðnó: „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu“ Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Bríet, Valdimar og Elín Hall meðal hæstu styrkhafa Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Nýdönsk á toppnum 2024 Sjá meira