Sprewell handtekinn á Gamlárskvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2013 23:00 Latrell Sprewell. Mynd/Nordic Photos/Getty
Latrell Sprewell spilaði í þrettán ár í NBA-deildinni og lék þá með Golden State Warriors, New York Knicks og Minnesota Timberwolves á árunum 1992 til 2005. Hann komst meðal annars í fréttirnar fyrir að ráðast á þjálfara sinn hjá Golden State og hafna 21 milljón dollara samningi við Golden State af því að hann þurfti meira til að sjá fjölskyldu sinni farborða. Sprewell komst aftur í fréttirnar um áramótin þegar hann endaði á bak við lás og slá en hann er nú orðinn 42 ára gamall. Sprewell býr nú í Milwaukee og lögreglan þurfti að hafa afskipti af honum á Gamlárskvöld vegna mikils hávaða frá húsi hans. Lögreglan kom á staðinn og handtók Sprewell eftir að hafa fengið tvær kvartanir á einum klukkutíma. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem nágrannarnir kvörtuðu undan alltof miklum hávaða frá húsi Latrell Sprewell. Lögreglan vildi ekki gefa meira upp um málið en líklegt er að Sprewell hafi ekki tekið alltof vel í heimsókn þeirra. Latrell Sprewell fékk meira en 97 milljónir dollara í laun á ferlinum en hefur verið undanfarin ár í talsverðum fjárhagskröggum. Hann missti meðal annars glæsiskútu sína 2007, húsið sitt árið eftir og skuldaði skattinum 3,5 milljónir dollara árið 2011.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Íslenski boltinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Sjá meira