Körfubolti

NBA: Utah skellti meisturunum

Utah Jazz hefur ekki gengið vel að halda út í leikjum sínum í vetur en liðið sýndi styrk í nótt er LeBron James andaði ofan í hálsmálið á þeim. Sterkur sigur hjá Utah.

James lék mjög vel. Skoraði 32 stig og setti niður 13 af 19 skotum sínum. Al Jefferson skoraði 23 stig fyrir Utah og tók 11 fráköst.

Rajon Rondo náði þrefaldri tvennu fyrir Boston í nótt en þetta var í 26. skiptið sem hann nær því á ferlinum. Sú frammistaða dugði til sigurs gegn Charlotte. Rondo skoraði 17 stig, tók 10 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Þetta var sjötti sigur Boston í röð.

Úrslit:

Washington-Orlando 120-91

Boston-Charlotte 100-89

Chicago-Atlanta 97-58

Memphis-LA Clippers 73-99

Dallas-Minnesota 113-98

Utah-Miami 104-97

Phoenix-Oklahoma 90-102

Sacramento-Cleveland 124-118



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×