Íslenska 21 árs landsliðið tapaði 3-0 á móti Wales í vináttulandsleik í Wales í dag. Wales var sterkara liðið í leiknum en skoraði ekki mörkin sín fyrr en á lokamínútum leiksins.
Þetta er áttunda tap íslenska 21 árs liðsins í röð undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar því liðið tapaði sjö síðustu leikjum sínum í síðustu undankeppni.
Walesbúar skoruðu öll þrjú mörkin sín á síðustu ellefu mínútum leiksins en á undan hafði íslenska liðið skapað sér nokkur færi, það besta þegar Arnór Ingvi Traustason slapp einn í gegn.
Wes Burns hjá Bristol City, Jonathan Williams hjá Crystal Palace og Robert Ogleby hjá Wrexham skoruðu mörk Wales í leiknum. Mörk Wales komu á 79., 83. og 89. mínútu.
Síðustu átta leikir 21 árs landsliðsins:
EM: Ísland - Noregur 0-2
EM: Ísland - England 0-3
EM: England - Ísland 5-0
EM: Aserbaídsjan - Ísland 1-0
EM: Ísland - Aserbaídsjan 1-2
EM: Noregur - Ísland 2-1
EM: Belgía - Ísland 5-0
Vin: Wales - Ísland 3-0
Áttunda tap 21 árs landsliðsins í röð
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


„Menn vissu bara upp á sig sökina“
Körfubolti

Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United
Enski boltinn

Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni
Íslenski boltinn


Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar
Íslenski boltinn




Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín
Íslenski boltinn
Fleiri fréttir

Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
