Körfubolti

Pavel hafði hægt um sig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Norrköping Dolphins vann í kvöld þriggja stiga sigur á 08 Stockholm, 85-82, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Pavel Ermolinskij spilaði í 28 mínútur í kvöld en á þeim tíma skoraði hann fjögur stig og nýtti aðeins eina skottilraun sína af fjórum utan af velli.

Hann tók þó níu fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann varði eitt skot, stal boltanum einu sinni en tapaði honum fjórum sinnum í leiknum.

08 náði að minnka muninn í eitt stig með þriggja stiga körfu þegar tíu sekúndur voru eftir en höfrungarnir kláruðu þetta á vítalínunni.

Norrköping er í fjórða sæti deildarinnar með 42 stig þegar ein umferð er eftir af deildakeppninni. Ljóst er að liðið muni mæta Borås í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en óvíst hvort liðið hafi heimaleikjarétt í rimmunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×