Körfubolti

Notaði skóinn sinn á ólöglegan hátt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marc Gasol, miðherji Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta, deyr ekki ráðalaust þótt að hann missi annan skóinn sinn í miðjum leik. Spánverjinn stóri og stæðilegi komst þó ekki upp með að nota skóinn sinn í vörninni í leik á móti Utah Jazz á dögunum.

Gasol missti skóinn þegar hann var að hlaupa aftur í vörn eftir að hafa skorað og liðsfélagi hans kom síðan hlaupandi með hann til hans. Gasol hafði hinsvegar ekki tíma til að klæða sig aftur í skóinn og notaði hann síðan til að slá boltann úr höndum Derrick Favors, leikmanns Utah.

Gasol fékk á sig villu og þá gafst honum loksins tími til að klæða sig aftur í skóinn sinn. Atvikið gerðist í fjórða leikhluta þegar rúmar níu mínútur voru eftir af leiknum en Memphis tapaði þessum leik. Það er hægt að sjá þessu óvenjulegu tilburði Gasol hér fyrir neðan.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×