Körfubolti

NBA: 27. sigurinn í röð ekki vandamál fyrir Miami - 3 töp í röð hjá Lakers

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mike Miller og LeBron James.
Mike Miller og LeBron James. Mynd/Nordic Photos/Getty
Miami Heat hélt áfram sögulegri sigurgöngu sinni í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið vann sannfærandi 14 stiga sigur á nágrönnum sínum í Orlando Magic. Miami Heat hefur nú unnið 27 leikir í röð og vantar sex sigra í viðbót til þess að jafna met Los Angeles Lakers frá 1971-72.

LeBron James var með 24 stig, 11 stoðsendingar og 9 fráköst í leiknum en Miami vann þarna annan leikinn í röð án Dwyane Wade sem var hvíldur vegna hnémeiðsla. Mario Chalmers var næststigahæstur með 17 stig. Jameer Nelson var með 27 stig og 12 stoðsendingar hjá Orlando.

Los Angeles Lakers tapaði sínum þriðja leik í röð í nótt þegar liðið lá 103-109 á móti Golden State Warriors. Á sama tíma vann Utah Jazz 107-91 sigur á Philadelphia og það er því aftur komin mikil spenna í baráttu liðanna um áttunda OG síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar.

Kobe Bryant skoraði 36 stig í leiknum og Steve Nash var með 21 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar. Dwight Howard bætti við 11 stigum og 15 fráköstum. Stephen Curry var með 25 stig, 10 stoðsendingar og 7 fráköst fyrir Golden State, David Lee skoraði 23 stig og tók 12 fráköst og Klay Thompson var með 22 stig.

John Wall hjá Washington Wizards var þó maður kvöldsins því hann var með 47 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst í 107-94 sigri Washington-liðsins á Memphis Grizzlies. Washington hefur unnið 21 af 37 leikum síðan Wall snéri aftur eftir meiðsli en vann aðeins 5 af 33 leikjum án hans.

New Orleans Hornets endaði fimmtán leikja sigurgöngu Denver Nuggets með því að vinna 110-86 heimasigur á Denver í nótt. Lið sem hefur unnið fimmtán eða fleiri leiki í röð hefur aldrei tapað svona stórt í sögu NBA-deildarinnar. Hinn léttþekkti Brian Roberts var með 13 stig og 18 stoðsendingar í leiknum.



Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt:

Washington Wizards - Memphis Grizzlies 107-94

Orlando Magic - Miami Heat 94-108

Indiana Pacers - Atlanta Hawks 100-94

New Orleans Hornets - Denver Nuggets 110-86

Utah Jazz - Philadelphia 76Ers 107-91

Golden State Warriors - Los Angeles Lakers 109-103

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×