Körfubolti

Lygileg endurkoma hjá Miami | 24 sigrar í röð

LeBron fagnar í nótt.
LeBron fagnar í nótt.
Meistarar Miami Heat lentu 27 stigum undir gegn Cleveland í nótt. Það dugði ekki til þess að brjóta liðið sem kom til baka og vann sinn 24. leik í röð í NBA-deildinni.

LeBron James skoraði 19 af 25 stigum sínum í leiknum í síðari hálfleik. Mario Chalmers skoraði 17 stig. Miami vann síðustu 19 mínútur leiksins, 58-28.

"Þetta var einn furðulegasti dagur í mínu lífi. Þetta var líka ein besta endurkoma sem ég hef tekið þátt í. Ég var persónulega ekkert að hugsa um sigurgönguna. Bara um að tapa ekki leiknum," sagði LeBron James eftir leikinn.

Úrslit:

Charlotte-Toronto 107-101

Cleveland-Miami 95-98

NY Knicks-Orlando 106-94

Atlanta-Milwaukee 98-90

Memphis-Oklahoma 90-89

New Orleans-Boston 87-86

Houston-Utah 100-93

Dallas-Brooklyn 96-113

San Antonio-Golden State 104-93

Phoenix-Washington 79-88

LA Clippers-Philadelphia 101-72



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×