Körfubolti

James sá um Indiana

Úr leik liðanna í nótt.
Úr leik liðanna í nótt.

Meistarar Miami Heat eru aðeins einum sigri frá úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar eftir að hafa unnið leik fimm, 90-79, gegn Indiana Pacers. Miami leiðir einvígið, 3-2.

LeBron James skoraði 30 stig fyrir Miami í leiknum og þar af komu 16 stig í þriðja leikhluta. Miami var að elta fram að þessum flotta kafla hjá James.

Chris Bosh og Dwyane Wade höfðu óvenju hægt um sig og voru aðeins með 17 stig samtals. Udonis Haslem skilaði aftur á móti 16 stigum og Mario Chalmers 12.

Paul George var sterkastur í liði Indiana en hann skoraði 27 stig og tók 11 fráköst. Roy Hibbert skoraði 22 stig.

Næsti leikur fer fram á heimavelli Indiana á laugardagskvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×