Körfubolti

James orðinn tvöfaldur NBA-meistari samkvæmt nýju skónum

Svona líta skórnir út.
Svona líta skórnir út.
Pressan á LeBron James, stórstjörnu Miami Heat, fyrir kvöldið er mikil. Ekki minnkaði hún í dag þegar út láku myndir af nýju skónum hans.

James og félagar verða að vinna San Antonio Spurs í nótt til þess að þvinga fram oddaleik í úrslitum NBA-deildarinnar. Sigur Spurs í nótt tryggir þeim titilinn.

Á nýju skónum hans James stendur að hann sé tvöfaldur NBA-meistari og að annar titillinn hafi komið í ár. Nike er sem sagt búið að framleiða skóna og gengur út frá því sem vísu að Miami verði meistari.

Það verður því afar neyðarlegt fyrir Nike og James ef Spurs lyftir titlinum í nótt eða á fimmtudag.

Leikur næturinnar hefst klukkan eitt eftir miðnætti og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Meistari 2011-12 og 2012-13 samkvæmt skónum.
"2 time champion."
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×