Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Ebbu Guðný Guðmundsdóttur matgæðing útbúa heilsusamlegan jarðaberjaís með Steviu sætu í stað sykurs. Ebba er snillingur á sínu sviði og hér gerir hún einstaklega bragðgóðan og svalandi sumarís.
Jarðarberjaís
300g lífræn frosin jarðarber
1 stór þroskaður banani (eða 2 litlir)
10-15 dropar hindberja-, greip- eða vanillu Via-Health stevia
60ml vatn
5-7 msk þeyttur rjómi
Setjið frosin jarðarberin í matvinnsluvél og látið þau standa þar í um 20 mínútur til að ná mesta frostinu úr þeim. Blandið svo vel saman berjum, banana, steviu og vatni. Blandið berja- og bananablöndunni varlega saman við þeytta rjómann. Frystið í stóru móti eða í mörgum litlum frostpinnaformum.
Hér má sjá Ebbu elda dásamlegar múffukökur.
Matarsíða Visis.