Libaux segist hafa gengið lengi með hugmyndina í maganum þar sem hann teldi að hrá og hávær tónlist QOTSA yrði dásamleg í mjúkum og rólegum flutningi söngkvenna. "Ég bjó til lista yfir allar uppáhalds söngkonurnar mínar og sendi ógrynni tölvubréfa. Til allrar hamingju fékk ég jákvæð viðbrögð frá mörgum," segir hann í samtali við bloggsíðuna Speakeasy.
Torrini syngur lagið Go with the Flow af plötunni Songs For the Deaf frá árinu 2002, en hún er almennt talin besta plata QOTSA. Af öðrum söngkonum á plötunni má nefna Katharine Whalen, Inara George, Gaby Moreno og Alela Diane.
Josh Homme, aðalsprauta QOTSA, lagði blessun sína yfir verkefnið og er að eigin sögn í skýjunum yfir útkomunni, en sveitin sendi á dögunum frá sér breiðskífuna ...Like Clockwork, sem hefur fengið góðar viðtökur frá gagnrýnendum jafnt sem almenningi.

Nouvelle Vague er samstarfsverkefni Frakkanna Olivier Libaux og Marc Collin sem staðið hefur yfir í um áratug. Þeir hafa sent frá sér nokkrar plötur þar sem þeir fá ýmsar söngkonur til að spreyta sig á gömlum pönk- og nýbylgjuslögurum sem settir hafa verið í bossa nova-útsetningar að hætti 7. áratugarins.
Hljómsveitir eins og Joy Division, Dead Kennedys, Buzzcocks og XTC hafa verið heiðraðar af Nouvelle Vague, og enn í dag má stundum heyra þessar óvenjulegu útgáfur á millifínum veitingahúsum borgarinnar.