Körfubolti

Nash fær að æfa með Inter Milan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photso / Getty Images
Körfuboltakappinn Steve Nash er þekktur fyrir áhuga sinn á knattspyrnu en hann fær á næstu dögum að æfa með stórliði Inter frá Ítalíu.

„Þetta er sannkallaður draumur sem er að rætast hjá mér. Mér líður eins og litlum krakka,“ sagði Nash við bandaríska fjölmiðla í vikunni.

Hann fær að æfa með Inter í vikunni áður en að liðið keppir á æfingamóti vestanhafs. „Inter er eitt af stærstu íþróttafélögum heims. Ég er mun stressaðri fyrir þessu en að spila stóra körfuboltaleiki.“

Nash er á mála hjá LA Lakers í NBA-deildinni. Umrætt æfingamót hefst á laugardaginn þegar að AC Milan leikur gegn Valencia. Juventus mætir svo Everton en önnur lið á mótinu eru Inter, Chelsea, Real Madrid og LA Galaxy.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×