Körfubolti

NBA-deildin ætlar sér stóra hluti í Afríku

Luol Deng.
Luol Deng.
Forráðamenn NBA-deildarinnar hyggja á nýja landvinninga og nú hafa þeir blásið til sóknar í Afríku.

Búið er að gera stóra samning við sjónvarpsstöð í Suður-Afríku. Upphæðir voru þó ekki gefnar upp en samningurinn er til margra ára.

Stöðin sem keypti réttinn sendir út í flestum löndum Afríku þannig að efnið verður aðgengilegt ansi víða. Áhugi á NBA-deildinni í Afríku er alltaf að aukast en leikmenn frá Afríku eru að spila í deildinni. Luol Deng, leikmaður Chicago Bulls, er til að mynda fæddur í Súdan.

NBA opnaði skrifstofu í Suður-Afríku fyrir þrem árum síðan og markmið deildarinnar eru skýr. Að gera íþróttina að þeirri vinsælustu í álfunni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×