Fuglamaðurinn er enginn barnaníðingur 19. september 2013 11:15 Andersen í leik gegn Oklahoma.
Eftir fimmtán mánaða rannsókn á meintu kynferðisbroti Chris "Birdman" Andersen hefur körfuboltamaðurinn verið sýknaður. Hann lenti í mjög sérstöku máli sem er í anda þess sem ruðningsleikmaðurinn Manti Te'o lenti í. Andersen var grunaður um að hafa átt í kynferðislegu sambandi við stúlku undir lögaldri. Nú hefur komið í ljós að málið er tómt kjaftæði. Te'o varð heimsfrægur þegar í ljós kom að hann hafði verið hafður að fífli á netinu. Hann taldi sig vera kominn í samband við stelpu sem hann kynntist í gegnum stefnumótasíðu. Voru þar illkvittnir aðilar á ferð og var farið illa með Te'o sem hefur verið skotspónn brandarakalla síðan. Mál Andersen er að mörgu leyti líkt máli Te'o nema mun umfangsmeira. Það er eins og mál Te'o á sterum. Í máli Andersen var kona í Kanada sem gerði sér lítið fyrir og þóttist vera Andersen á netinu. Hún hóf að ræða við konu í Kaliforníu á netinu. Síðan þóttist hún vera þessi kona er hún ræddi við hinn raunverulega Andersen. Þrátt fyrir þennan rugling varð það úr að raunverulega konan í Kaliforníu fór til Denver er Andersen var að spila með Nuggets. Hún náði þó ekki saman við NBA-leikmanninn. Konan í Kanada, sem lék tveimur skjöldum, var með alls konar hótanir í nafni beggja aðila. Hún var að lokum handtekin í janúar síðastliðnum. Þetta mál fór illa með feril Andersen því skömmu eftir að lögreglan réðst inn til hans fór hann frá Nuggets. Ekkert lið vildi síðan semja við hann. Allt þar til meistarar Miami Heat sömdu við hann fyrr á þessu ári. "Mannorði Chris var slátrað. Ef þú settir nafnið hans á google þá leit hann út fyrir að vera barnaníðingur. Dómstóll götunnar var löngu búinn að ákveða sig," sagði umbi Andersen.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira