KR-ingar þurfa engan Kana þegar þeir hafa Pavel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2013 20:49 Pavel Ermolinskij. Mynd/Daníel
KR-ingar héldu áfram sigurgöngu sinni í Stykkishólmi í kvöld þegar liðið vann fimmtán stiga sigur á heimamönnum í Snæfelli, 99-84. KR-liðið hefur þar með unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni í ár. KR-liðið lét það ekkert spilla deginum að Bandaríkjamaðurinn Shawn Atupem stakk af fyrir leikinn og það voru íslenskir leikmenn liðsins sem sýndu styrk sinn í kvöld. Pavel Ermolinskij var með þrefalda tvennu (20 stig, 22 frákast og 13 stoðsendingar), Darri Hilmarsson skoraði 22 stig og Helgi Már Magnússon skoraði 16 af 25 stigum sínu í fyrri hálfleik. Kristján Pétur Andrésson skoraði 20 stig á 20 mínútum fyrir Snæfell og Vance Cooksey skoraði 18 stig og gaf 8 stoðsendingar. KR-ingar skoruðu sex stig í röð og komast í 13-7 um miðjan fyrsta leikhlutann en liðið skiptust á því að hafa forystu á fyrstu mínútum leiksins. KR var einu stigi yfir við lok fyrsta leikhlutans, 21-20, þar sem að Pavel Ermolinskij var strax kominn með 6 stig og 6 fráköst fyrir KR. KR-ingar voru síðan tólf stigum yfir í hálfleik, 47-35, eftir að hafa unnið síðustu fjórar mínútur hálfleiksins 18-6. Helgi Már Magnússon setti niður tvo þrista á þessum kafla og var kominn með sextán stig í hálfleik. KR fylgdi þessu eftir með góðri byrjun á seinni hálfleiknum og var komið 19 stigum yfir, 57-38, eftir fimm mínútna leik. KR vann 17 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 69-52, en Pavel var þá þegar kominn með þrefalda tvennu (13 stig, 21 frákast og 10 stoðsendingar). KR-ingar sigldu sigrinum í höfn í fjórða leikhlutanum en heimamenn náðu aðeins að laga stöðuna í lokin.
Dominos-deild karla Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Enski boltinn Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Fleiri fréttir Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Sjá meira