Körfubolti

Miami-liðið fékk meistarahringana sína í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
NBA-körfuboltatímabilið hófst í nótt alveg eins og það endaði í júní eða með því að leikmenn Miami Heat fögnuðu sigri.

Miami Heat hélt upp á meistaratitil sinn frá síðasta tímabili í nótt og hóf síðan strax leið sína að þeim næsta þegar liðið vann sannfærandi 107-95 sigur á Chicago Bulls. Miami komst mest 25 stigum yfir í leiknum.

Leikmenn Miami Heat fengu allir meistarahringi sína fyrir leikinn og horfðu síðan á meistarafánann fara upp í rjáfur.

Það er hægt að sjá LeBron James og félaga hans taka á móti meistarahringjum sínum með því að smella á tengilinn hér fyrir ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×