Hardy í miklum ham á móti Hamri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2013 20:49 Lele Hardy. Mynd/Daníel
Haukar stöðvuðu tveggja leikja sigurgöngu Hamars með því að vinna sex stiga sigur, 86-80, í Hveragerði í kvöld í 7. umferð Dominos-deild kvenna í körfubolta. Haukakonur komust fyrir vikið upp fyrir Hamar í töflunni og eru núna í fjórða og síðasta sætinu sem gefur sæti í úrslitakeppninni. Þessi leikur var sýning hjá bandarísku leikmönnum liðanna sem áttu báðar stórleik. Lele Hardy var með 46 stig, 19 fráköst og 7 stolna bolta í leiknum fyrir Hauka en fékk verðuga samkeppni frá Di'Amber Johnson sem var með 42 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar hjá Hamarsliðinu. Hamarskonur voru í ágætum málum í hálfleik, fimm stigum yfir, 39-34, og búnar að halda Lele Hardy, stigahæsta leikmanni deildarinnar í aðeins 9 stigum. Hardy átti hinsvegar eftir að gerbreyta leiknum í seinni hálfleiknum. Lele Hardy átti ótrúlegan þriðja leikhluta þar sem Haukaliðið snéri við leiknum. Hardy skoraði þá 24 stig og Haukar unnu leikhlutann 29-16 og komust í 63-55 fyrir lokafjórðunginn. Haukar voru með frumkvæðið í fjórða leikhlutanum en Di'Amber Johnson hélt sínu liði inni í leiknum með því að skora 17 stig í leikhlutanum. Haukaliðið var sterkara og landaði mikilvægum sigri.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Fyrsti Ítalinn í fjörutíu ár til að vinna opna ítalska Sport Fleiri fréttir „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Tap í fyrsta leik Alba Berlin Daníel tekur við KR Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Sjá meira