Körfubolti

Rose meiddist á hné

Chicago Bulls varð fyrir miklu áfalli í nótt er stjarna liðsins, Derrick Rose, meiddist á hné. Sama hné og hélt honum frá keppni í eitt og hálft ár.

Rose er nýbyrjaður að spila aftur og þetta er því mikið áfall fyrir hann að hnéð hafi gefið sig á nýjan leik. Hann haltraði af velli í þriðja leikhluta er hann var búinn að skora 20 stig.

Það mun væntanlega skýrast í dag hversu alvarleg meiðslin eru.

Úrslit:

Charlotte-Phoenix  91-98

Philadelphia-Milwaukee  115-107

Toronto-Washington  96-88

Boston-Indiana  82-97

Detroit-Atlanta  89-96

Memphis-San Antonio  86-102

Minnesota-Brooklyn  111-81

New Orleans-Cleveland  104-100

Dallas-Utah  103-93

Portland-Chicago  98-95

LA Lakers-Golden State  102-95

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×