Hræðsluáróður og útúrsnúningar hæstaréttarlögmanns Örn Bárður Jónsson skrifar 8. janúar 2013 06:00 Þakka ber Reimari Péturssyni fyrir að auglýsa bölsýna afstöðu sína til nýrrar stjórnarskrár. Hann brást við mánaðargömlum greinarstúfi mínum og gefur mér þar með kærkomið tilefni til að ítreka skoðanir mínar á seinheppni fræðasamfélagsins og málflutningi andstæðinga nýrrar stjórnarskrár. Honum svíður undan orðabrandi mínum. Ég á mér það þó til málsbóta að Fréttablaðið birti ranga útgáfu af greininni og beittari en ég ætlaði mér og bað ritstjórinn mig afsökunar á því. Auðvitað er það fyrirgefið og mér er engin vorkunn að standa við hið prentaða orð. Fv. fulltrúar í Stjórnlagaráði (Slr.) lögðu í það krafta sína og reynslu að semja nýja stjórnarskrá, störfuðu í fjóra mánuði í galopnu, lýðræðislegu ferli, þar sem kallað var eftir viðbrögðum almennings og stofnana, félagsheilda og fræðasamfélags. Þeir hafa margir hverjir orðið fyrir vonbrigðum þegar sniglum líkir einstaklingar hafa loks rænu á að tjá sig, löngu eftir að ferlinu lauk og meira að segja eftir að þjóðin hafði sagt álit sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hugmyndir Slr. voru ræddar í þaula á starfstíma ráðsins. Þær voru ekki flausturslega unnar heldur ávöxtur af heilbrigðum skoðanaskiptum, snörpum á köflum, faglegri vinnu, virðingu fyrir skoðunum annarra og með ívafi frá almenningi, samtökum, félögum og hagsmunahópum. Einna háværastir í gagnrýni á frumvarpið eru lögmenn sem flestir koma reyndar úr einum og sama stjórnmálaflokki og líklega er það algjör tilviljun að flokkur þeirra stendur þver og þrár í vegi frumvarpsins. Lögfræðingar margir hverjir láta eins og þeir standi á skjálfandi jörð, eins og búið sé að kippa undan þeim tilvistargrundvellinum. Þeir óttast lagalega óvissu. Og ég sem hélt í sakleysi mínu að lögfræðingar, sem eru með slyngustu mönnum landsins þegar kemur að verðlagningu útseldrar vinnu sinnar, myndu skynja öll verkefnin og tekjurnar sem ný stjórnarskrá mun skapa þeim. Ekki meitluð í stein Fullkomin stjórnarskrá verður aldrei til og sú sem nú er í umræðunni verður ekki meitluð í stein. Henni má breyta, finni menn á henni alvarlega agnúa í náinni framtíð. Ég talaði um „úrtölufólk" og „gungur". Það voru mín orð og ég stend við þau. Orðin eiga við um fólk sem ekki þorir að horfast í augu við þær erfiðu aðstæður sem þjóðin býr nú við. Við erum enn í rústabjörgun eftir hrunið sem varð að mestu vegna bjálfráða þeirra sem nú skarast á við þau sem harðast ganga gegn lýðræðisumbótum og réttlátu þjóðfélagi. Reimar hengir reyndar prest fyrir kóng þegar hann gerir mig að höfundi þeirra orða sem hinn vitri, Salómon, mælti þegar hann talaði um „heimskingja" og líkir þeim við „hund" sem snýr aftur til „spýju" sinnar. Þau eru því miður allt of mörg hér á landi sem vilja engu breyta, vilja bara horfa til baka, til gömlu góðu daganna, þegar menn „græddu á daginn og grilluðu á kvöldin" eins og draup af vörum einnar brekkunnar í fræðasamfélaginu á dögum „óðærisins". Líkingamál Salómons er sterkt og beitt og það á vissulega við um þau sem vilja ekki nýja framtíð heldur gömlu forréttindin. Gott er til þess að vita, Reimars vegna og annarra sem illa þola tæpitungulaust málfar um afglöp og skaðræði, að séra Jón Vídalín er undir grænni torfu. Reimar segir: „Tillögurnar fela í sér mikla hættu fyrir lýðræðið" og færir engin rök fyrir þeirri staðhæfingu en gagnrýnir mig fyrir rökþrot. Misst af lestinni Nú er málið fyrir Alþingi og örfáar vikur til loka þess ferlis sem var vel skilgreint og varðað af hálfu Alþingis fyrir fjórum árum. Það liggur í augum uppi að það fræðasamfélag, sem Reimar ræðir nú, hefur misst af lestinni og getur ekki verið að hræra í efnisatriðum á þessu stigi málsins. Reyndar kom margt ágætt fólk úr svonefndu fræðasamfélagi að verki Slr. á sínum tíma, gaf góð ráð og holl, sem tillit var tekið til í langflestum tilfellum. En fræðasamfélagið veður í villu og svíma á þessum tímapunkti. Sérskipuð nefnd lögfræðinga sem falið var að fara yfir frumvarpið fékk skýr fyrirmæli um að hreyfa ekki við efnisatriðum nema þeim sem samkomulag var um að breyta á sérstökum samráðsfundi sem þingið boðaði til með fv. fulltrúum Slr. í mars 2012. Fræðasamfélagið athugi það. Hræðsluáróður og rökþrot þeirra sem nú sjá frumvarpinu allt til foráttu er til þess eins að tortíma hinni góðu smíð, sem rómuð er af fjölda fræðimanna og sérfræðinga, bæði hér innanlands og ekki síst við virtar fræðastofnanir erlendis. Það geta ekki allir fengið sérsmíðaða stjórnarskrá fyrir sig, ekki einu sinni fræðimenn. Málþófs- og þrætufólki á þingi sem í 68 ár hefur reynt að skapa nýja stjórnarskrá hefur ekki tekist það. Slr. var falið að vinna verkið og við þekkjum öll ferlið. Slr. lauk verkinu með sóma og samþykkti þaulrætt frumvarp að nýrri stjórnarskrá 25/0. Sumir hafa gagnrýnt að þetta hafi allt gerst á of skömmum tíma. Í því samhengi – og engu öðru – nefndi ég dagana 115 sem Slr. starfaði og bar þá saman við þá 116 sem þurfti til að koma saman bandarísku stjórnarskránni. Íslendingar tjáðu sig í atkvæðagreiðslu um frumvarpið 20. október sl. og lýstu afgerandi stuðningi við það. Og ég spyr: Hefur fræðasamfélagið enga sómakennd varðandi lýðræðið í landinu? Fræðasamfélagið, sem nú byltir sér, missti af tækifærinu. Það hefur haldið fundi um málið á liðnum vikum en gætti þess að bjóða ekki fulltrúum úr Slr. til að eiga þar rödd. Í Slr. starfaði fjöldi fræðimanna og fólk með viðtæka reynslu sem veit sínu viti. Nei, fræðasamfélagið talaði við sjálft sig og vildi enga aðra inn í fílabeinsturninn enda hefði það getað raskað ró og löngum svefni. Ég vitnaði í fyrri grein minni í Salómon konung og nú ætla ég að ganga ögn lengra og vitna í sjálfan Jesú sem sagði hina djúpvitru dæmisögu um meyjarnar tíu. Fimm voru hyggnar og misstu því ekki af hinu sögulega augnabliki og gengu inn til brúðkaupsins meðan hinar fimm fávísu enduðu utan gátta. Ég læt Reimari eftir að túlka dæmisöguna frekar og vænti þess að hann hafi kjassmálli prest en mig til að ráðfæra sig við í þeim efnum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Örn Bárður Jónsson Mest lesið Halldór 4.10.2025 Halldór Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk Skoðun Barnafjölskyldur í Reykjavík eiga betra skilið Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Kæra Epli, skilur þú mig? Lilja Dögg Jónsdóttir Skoðun Þorgerður og erlendu dómstólarnir Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Lyftum umræðunni á örlítið hærra plan Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Jákvæð áhrif dánaraðstoðar á sorgarferli aðstandenda og umönnunaraðila í Viktoríuríki í Ástralíu Ingrid Kuhlman Skoðun Transumræðan og ruglið um fjölda kynja Einar Steingrímsson Skoðun 752 dánir vegna geðheilsuvanda – enginn vegna fjölþáttaógnar Grímur Atlason Skoðun 7 milljarða húsnæðisstuðningur afnuminn… en hvað kemur í staðinn? Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Jákvæð áhrif dánaraðstoðar á sorgarferli aðstandenda og umönnunaraðila í Viktoríuríki í Ástralíu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Kæra Epli, skilur þú mig? Lilja Dögg Jónsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður og erlendu dómstólarnir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Barnafjölskyldur í Reykjavík eiga betra skilið Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Lyftum umræðunni á örlítið hærra plan Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Lykillinn að hamingju og heilbrigði Auður Kjartansdóttir skrifar Skoðun Staða bænda styrkt Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Transumræðan og ruglið um fjölda kynja Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Leikskólar eru ekki munaður Íris Eva Gísladóttir skrifar Skoðun Vísindarannsóknir og þróun – til umhugsunar í tiltekt Þorgerður J. Einarsdóttir skrifar Skoðun 752 dánir vegna geðheilsuvanda – enginn vegna fjölþáttaógnar Grímur Atlason skrifar Skoðun Foreldrar þurfa bara að vera duglegri Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kópavogsmódelið – sveigjanleiki á pappír, en álag á foreldrar í raun og veru Örn Arnarson skrifar Skoðun Dýrkeypt eftirlitsleysi Lilja Björk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Uppgjöf Reykjavíkurborgar í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Svindl eða sjálfsvernd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Magga Stína! Helga Völundardóttir skrifar Skoðun Mannauðurinn á vinnustaðnum þarf góða innivist til að dafna Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Þetta er námið sem lifir áfram Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Árborg - spennandi kostur fyrir öll Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Tökum á glæpahópum af meiri þunga Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Minntist ekkert á Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hugsum stórt í skipulags- og samgöngumálum Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Eitt eilífðar smáblóm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Betri mönnun er lykillinn Skúli Helgason,Sabine Leskopf skrifar Skoðun Borgarhönnunarstefna, sú fyrsta sinnar tegundar í Reykjavík Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Hversu oft á að fresta framtíðinni? Erna Magnúsdóttir,Stefán Þórarinn Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Ísland staðið fremst í heilsutækni? Arna Harðardóttir skrifar Skoðun Slæm innivist skerðir afköst og hækkar kostnað Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk Skoðun
Jákvæð áhrif dánaraðstoðar á sorgarferli aðstandenda og umönnunaraðila í Viktoríuríki í Ástralíu Ingrid Kuhlman Skoðun
Skoðun Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk skrifar
Skoðun Jákvæð áhrif dánaraðstoðar á sorgarferli aðstandenda og umönnunaraðila í Viktoríuríki í Ástralíu Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Kópavogsmódelið – sveigjanleiki á pappír, en álag á foreldrar í raun og veru Örn Arnarson skrifar
Skoðun Uppgjöf Reykjavíkurborgar í leikskólamálum Finnbjörn A. Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Borgarhönnunarstefna, sú fyrsta sinnar tegundar í Reykjavík Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar
Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk Skoðun
Jákvæð áhrif dánaraðstoðar á sorgarferli aðstandenda og umönnunaraðila í Viktoríuríki í Ástralíu Ingrid Kuhlman Skoðun