Fyrir tveimur mánuðum birtist grein eftir mig í Fréttablaðinu, þar sem ég lýsti yfir stuðningi við Guðlaug Þór Þórðarson í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Nokkru síðar birtist svo önnur grein, þar sem ég skammaði sérstakan saksóknara fyrir að leggjast hundflatur fyrir vafasömum kærum banka, en gefa lítið fyrir kærur frá einstaklingum.
Nokkrum dögum seinna birtist "Sandkorn" í DV sem ég ætla að leyfa mér að birta í heild sinni hér. Fyrirsögnin var "Ófalur?" og textinn svohljóðandi:
"Ólafur Hauksson, sem kallar sig almannatengil, stígur stundum fram opinberlega til að mæra eða verja menn. Þannig skrifaði hann grein í Fréttablaðið á miðvikudaginn og varði Aron Karlsson sem dæmdur hefur verið í tveggja ára fangelsi í Vindasúlumálinu. Áður hefur Ólafur skrifað lofgreinar um Guðlaug Þór Þórðarson og varið kærða menn í Sigurplastsmálinu svokallaða. Velta menn því nú fyrir sér hvort hann sé falur; hvort hagsmunaaðilar geti keypt skoðanir Ólafs sem hann svo viðrar opinberlega."
Sjálfkrafa óvinur DV
Í sjálfu sér þurfti ég ekki að verða undrandi á þessum óhróðri DV. Þetta eru alkunn vinnubrögð ritstjórnarinnar. DV hatast út í Guðlaug Þór og hefur birt yfir eitt hundrað afar neikvæðar "fréttir" um hann. Vinir Guðlaugs verða augsýnilega sjálfkrafa óvinir DV. Í "Sigurplastsmálinu" birti DV rað-óhróður og ærumeiðingar um fyrrverandi eigendum fyrirtækisins. Ég sendi fréttatilkynningu þegar annar eigenda Sigurplasts höfðaði meiðyrðamál gegn DV og vann. Það gerði mig augsýnilega að óvini DV. Í gagnrýni minni á vinnubrögð sérstaks saksóknara tók ég málið gegn Aroni Karlssyni sem dæmi um undirlægjuhátt þess embættis við bankana. Við það varð ég enn meiri óvinur DV, því að blaðið hafði verið að pönkast í Aroni og föður hans í fréttaflutningi af þessu máli.
Ég var sem sagt vinur óvina DV og þar með taldi ritstjórn blaðsins sig bersýnilega hafa öðlast rétt til að pönkast á starfsheiðri mínum.
Betra að stíga í hundaskít
Ekki nennti ég að höfða mál vegna ærumeiðinga DV eða reyna að sannfæra blaðið um að skoðanir mínar væru ekki til sölu. Þá gæti ég allt eins stigið í hundaskít.
Ég ákvað hins vegar að leyfa DV að spegla sig í umræðu af þessu tagi, smakka á eigin meðali. Það gerði ég í grein sem birtist í Fréttablaðinu þann 5. janúar. Þar spurði ég hvort óhróðurinn í DV væri falur. Ég vísaði þar til undarlega mikillar þjónkunar blaðsins við banka og skiptastjóra þrotabúa í einhliða og síendurteknum ásökunum þeirra á hendur fjölmörgum einstaklingum. Ofsi blaðsins í þessum efnum jafnast á við hatursáróður.
Þar með fannst mér staðan orðin nokkuð jöfn. En Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri DV, ákvað að framlengja. Í grein í Fréttablaðinu 8. janúar sakaði hann mig um að nota "ljótustu áróðursbrögðin í bókinni" til að koma höggi á DV.
Staðreyndin er sú að eina "bókin" sem sem ég kannast við í þeim efnum er "sandkornið" í DV.
Gleymdi að líta í spegilinn
Hrakyrði Jóns Trausta í minn garð beinast því í raun að honum sjálfum. Grátlega fyndið er að sjá ummæli hans á borð við þessi: "[Almannatengillinn] getur leyft sér að klína hverju sem er á þann sem hann hyggst draga niður í svaðið." Í "sandkorni" DV um mig sagði: "Velta menn því nú fyrir sér hvort hann sé falur; hvort hagsmunaðilar geti keypt skoðanir Ólafs sem hann svo viðrar opinberlega."
Og svona til að láta kné fylgja kviði þá lýsir framkvæmdastjóri DV eftirfarandi yfir í Fréttablaðinu: "Hins vegar er auðvelt að svara honum með sönnum staðhæfingum: Ólafur stundar óhróður og þáttur hans í opinberri umræðu er til sölu." Það eina sem vantaði upp á röksemdafærslu hans var "pabbi minn er sterkari en pabbi þinn".
Margur hefur höfðað og unnið mál vegna ærumeiðinga af minna tilefni. Ég ráðlegg hins vegar engum að fara í mál gegn DV út af einu eða neinu. Í byrjun desember dæmdi Hæstiréttur DV til að greiða samtals 1,6 milljónir króna í miskabætur og málskostnað vegna ærumeiðinga. Greiðslurnar átti að inna af hendi án tafar og birta dóminn í næsta tölublaði DV. Rúmum mánuði síðar var DV hvorki búið að borga eina einustu krónu né birta dóminn.

Sorglega fyndið hjá DV
Tengdar fréttir

Sérstakur saksóknari slær skjaldborg um bankana
Samanburður á vinnubrögðum sérstaks saksóknara í tveimur kærumálum sýnir ótrúlegan undirlægjuhátt embættisins við bankana, á meðan "venjulegt“ fólk má éta það sem úti frýs.

Ólafur ræðst á spegilinn
Almannatengillinn Ólafur Hauksson birti á föstudag grein í Fréttablaðinu, þar sem hann notaði ljótustu áróðursbrögðin í bókinni til að koma höggi á DV og starfsmenn DV.

Besti heilbrigðisráðherrann
Ég hef síðustu tvo áratugina unnið fyrir fjölmarga einstaklinga og fyrirtæki sem hafa átt í samskiptum við ráðuneyti og ráðherra. Oftast nær eru frásagnir af slíkum samskiptum daprar. Fólk fær ekki svör eða er dregið á asnaeyrunum fram og til baka. Ákvörðunarfælni er gegnumgangandi.

Er óhróður DV falur?
DV hefur lengi stundað það að leggja tiltekna einstaklinga í einelti mánuðum og jafnvel árum saman. Blaðið veltir sér upp úr meinfýsnu slúðri og skætingi um þessa eintaklinga, í bland við ítarlegar upplýsingar sem fjölmiðillinn hefur um fjármál viðkomandi eða sakir sem á þá eru bornar. Þetta er endurtekið í sífellu, svona eins og þegar hrotti sparkar í liggjandi mann.
Skoðun

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar