Dominiqua Alma vann fimleikaafrek ársins 2013 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2014 18:22 Dominiqua Alma Belanyi. Mynd/Fimleikasamband Íslands
Dominiqua Alma Belanyi fékk Afreksbikar Fimleikasambands Íslands á Uppskeruhátíð Fimleikasambands Íslands sem var haldin í gær í höfuðstöðum TM, aðalstyrktaraðila Afrekssjóðs Fimleikasambandsins. Ýmsar viðurkenningar voru veittar fyrir afrek ársins, afreks- og starfsmerki voru veitt auk þess sem veitt var í fyrsta sinn úr Afrekssjóði Fimleikasambandsins. Fimleikafólk ársins eru Dominiqua Alma Belanyi og Ólafur Garðar Gunnarsson eins og fram hefur komið áður.Dominiqua átti frábært ár í fyrra þar sem hún skaraði fram úr í keppni á alþjóðlegum mótum með íslenska landsliðinu og Gróttu, náði bestum árangri keppenda í fjölþraut og vann til margra verðlauna sem er frábær frammistaða í áhaldafimleikum, s.s. fimm verðlauna á Smáþjóðaleikunum.Ólafur sigraði fjölþraut á Íslandsmótinu 2013, hann varð einnig Íslandsmeistari á hringjum, stökki og svifrá. Ólafur var í sigurliði Gerplu á bikarmóti FSÍ. Ólafur fór með landsliði Íslands á Smáþjóðaleikana í Lúxemborg og stóð sig mjög vel, þar sem liðið vann til bronsverðlauna. Auk þess lenti Ólafur í 4.sæti í fjölþraut ásamt því að vera í úrslit á öllum áhöldum nema stökki, Ólafur vann svo til bronsverðlauna á bogahesti.Afreksbikar var veittur fyrir það afrek sem stjórn FSÍ taldi hafa staðið upp úr á árinu og að þessu sinni hlýtur Dominiqua Alma Belanyi afreksbikarinn fyrir afrek sitt á Evrópumótinu í Moskvu, þar sem Dominique endaði í 35.sæti í fjölþraut kvenna, sem er einn besti árangur íslenskrar konu á Evrópumóti.Viðurkenningu fjölmiðla fyrir árið 2013 hlaut Íþróttadeild RÚV sem hefur lagt sig fram um það að auka þekkingu sína á fimleikum og færa hana heima í stofu til almennings. Íþróttadeild RÚV hefur á árinu 2013 staðið vaktina og flutt fréttir af árangri okkar fólks, sýnt beint frá fimleikaviðburðum, innlendum sem erlendum og hófu á árinu að sýna beint frá fimleikaeinvígi sem er nýtt mót á mótaskrá sambandsins sem er unnið í samstarfi við RÚV.Á mynd af úthlutun Afrekissjóðs eru frá vinstri Sigrún Edda Elíasdóttir, fulltrúi TM, Thelma Rut Hermannsdóttir, Ólafur Garðar Gunnarsson, Norma Dögg Róbertsdóttir, Jón Sigurður Gunnarsson, Dominiqua Alma Belanyi og Þorgerður L. Diðriksdóttir formaður FSÍ.Mynd/Fimleikasamband ÍslandsAfreksmerki Fimleikasambandsins voru veitt nokkrum einstaklingum fyrir afrek þeirra á erlendri grundu, Íslenska kvennalandsliðið í áhaldafimleikum gerði sér lítið fyrir og vann til gullverðlauna í liðakeppni á Smáþjóðaleikunum, sem fram fóru í Lúxemborg í júní. Í liðinu voru; Dominiqua Alma Belany, Hildur Ólafsdóttir, Jóhanna Rakel Jónasdóttir, Norma Dögg Róbertsdóttir og Thelma Rut Hermannsdóttir. Landsliðsþjálfarar eru Guðmundur Þór Brynjólfsson, Sandra Dögg Árnadóttir auk þess sem Gabor Kiss var þjálfari í þessari ferð. Ekki bara að konurnar hafi unnið gull í liðakeppni heldur kom liðið með 10 verðlaun af mótinu. Domino vann til gullverðlauna í fjölþraut, tvíslá og á gólfi, auk þess að fá brons á jafnvægisslá. Norma Dögg vann til gullverðlaun í stökki og brons á jafnvægisslá. Thelma Rut vann brons í fjölþraut og á tvíslá, auk þess sem Hildur vann til bronsverðalauna í stökki.Lið ársins. Íslenska kvennalandsliðið í áhaldafimleikum gerði sér lítið fyrir og vann til gullverðlauna í liðakeppni á Smáþjóðaleikunum, sem fram fóru í Lúxemborg í júní.Mynd/Fimleikasamband ÍslandsViktor Kristmannsson hlaut afreksmerki FSÍ fyrir að vinna Íslandsmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn í fjölþraut karla oftast allra í sögu sambandsins. Þessi mesti afreksmaður fimleikanna æfði hjá Íþróttafélaginu Gerplu í 23 ár en nú eru tvö ár frá því að hann lagði bolinn á hilluna. Á sínum glæsta ferli varð Viktor Íslandsmeistari í fjölþraut alls 10 sinnum og 9 sinnum í röð og var því óskoraður meistari í áratug.Starfsmerki voru veitt einstaklingum sem starfað hafa innan fimleikahreyfingarinnar til fjölda ára. Án sjálfboðaliða er ekki hægt að vinna þetta góða starf sem á sér stað úti í fimleikahreyfingunni. Þau sem hlutu starfsmerki í ár voru Gunnar Richardsson, Anna G. Lárusdóttir, Erna Sigurðardóttir, Eva Magnúsdóttir, Jóhannes Niels Sigurðsson, Hrafnhildur María Gunnarsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Halla Karí Hjaltested, Hildur Ketilsdóttir og Dýri Kristjánsson.Jón Finnbogason var sæmdur Gullmerki Fimleikasambandsins fyrir áralangt starf í þágu fimleika, en Jón var formaður Gerplu frá árinu 2006 til síðasta hausts, en þar á undan sat hann í stjórn Gerplu í tvö ár. Hann kom því samfellt í 10 ár að stjórnun félagsins en fyrir þann tíma sat hann í stjórn Fimleikasambands Íslands. Að lokum var Margrét Bjarnadóttir gerð að Heiðursfélaga Fimleikasambandsins fyrir störf innan hreyfingarinnar. Margrét var stofnandi fimleikafélagsins Gerplu og er ein af þeim sem komu félaginu til manns. Margrét hefur starfað náið með fleiri félögum eins og Glóð í Kópavogi. Og auk langrar stjórnarsetu í Gerplu, þar sem hún meðal annars formennsku, hefur Margrét setið í stjórn og/eða nefndum margra annarra samtaka, svo sem Fimleikasambandi Íslands þar sem hún sinnti formennsku í 6 ár.Fimleikafólk ársins eru Dominiqua Alma Belanyi og Ólafur Garðar Gunnarsson.Mynd/Fimleikasamband Íslands
Fimleikar Íþróttir Mest lesið Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag Fótbolti „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Körfubolti Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Körfubolti Juventus landaði sigri í fyrsta leik Spalletti Fótbolti Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Körfubolti Liverpool loks á sigurbraut á ný Enski boltinn Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Körfubolti Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Enski boltinn Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Valencia engin fyrirstaða fyrir Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Juventus landaði sigri í fyrsta leik Spalletti Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Liverpool loks á sigurbraut á ný Valencia engin fyrirstaða fyrir Real Madrid Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Lánleysi Úlfanna algjört og Palace aftur á sigurbraut Pedro afgreiddi Tottenham Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði Emelía innsiglaði sigurinn og liðið á toppnum Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Glódís Perla og félagar létu ekki áfall í byrjun stoppa sig Amad bjargaði stigi fyrir United Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Diljá norskur meistari með Brann Alexandra skoraði en hræðilegur fyrri hálfleikur eyðilagði allt Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð Tók ekki upp boltann og bjargaði mögulega tímabili liðsins Fyrrum þjálfari ársins notaði gervigreindina til að hjálpa sér „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ FH-ingar kveðja Kjartan Henry „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Sjá meira