Körfubolti

LeBron James þreyttur í tapi Heat í Utah

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Utah Jazz vann sinn sautjánda sigur á leiktíðinni í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum í nótt þegar liðið vann Miami Heat óvænt, 94-89. LeBron James náði sér ekki á strik í leiknum.

Jazz hefur aðeins unnið sautján af 50 leikjum sínum á leiktíðinni en þetta var fjórtánda tap Heat. James reyndi aðeins tvö skot í fjórða leikhluta og hitti úr hvorugu þeirra. James sem  hafði skorað yfir 30 stig í sex síðustu leikjum sínum í Salt Lake City skoraði aðeins 13 stig í nótt.

Marvin Williams skoraði 23 stig fyrir Jazz og Richard Jefferson 14. Dwyane Wade var stigahæstur hjá Heat með 19 stig.



Goran Dragic fór á kostum þegar Phoenix Suns lagði Golden State Warriors, 122-109. Dragic skoraði 34 stig en sex leikmenn Suns skoruðu 12 stig eða meira í leiknum. Gerald Green skoraði 25 stig en Suns tapar ekki þegar hann skorar yfir 20 stig.

Stephen Curry skoraði 28 stig fyrir Warriors og Harrison Barnes 23 stig af bekknum.

Fyrir 30 árum vann Detroit Pistons 186-184 sigur á Denver Nuggets í þríframlengdum leik. Aldrei hefur verið meira skorað í NBA en í þeim leik. Í nótt hafði Pistons betur í leik liðanna í leik þar sem lítið fór fyrir varnarleik þó ekki hafi verið alveg eins mikið skorað.

Pistons vann, 126-109, í venjulegum leiktíma þar sem Brandon Jennings fór á kostum í sókninni. Jennings skoraði 35 stig og gaf 12 stoðsendingar. Josh Smith skoraði 30 stig og tók 10 fráköst en sex leikmenn Pistons skoruðu tíu stig eða meira í leiknum.

Randy Foye skoraði 25 stig fyrir Nuggets og Wilson Chandler 20.

Úrslit næturinnar:

Charlotte Bobcats – San Antonio Spurs 100-104

Atlanta Hawks – Memphis Grizzlies 76-79

Detroit Pistons – Denver Nuggets 126-109

Minnesota Timberwolves – Portland Trail Blazers 110-117

Milwaukee Bucks – Houston Rockets 95-101

Phoenix Suns – Golden State Warriors 122-109

Utah Jazz – Miami Heat 94-89

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×