Körfubolti

Ég er ekki alki

Rodman á góðri stundu.
Rodman á góðri stundu.
Glíma Dennis Rodman við Bakkus er orðin löng og ströng. Hann fór í meðferð á dögunum en þó ekki til þess að hætta að drekka.

Rodman neitar að viðurkenna að hann sé alkóhólisti. Hann var drukkinn í viðtali á CNN á dögunum þar sem hann missti stjórn á skapi sínu. Í kjölfarið fór hann í meðferð.

"Ég þurfti að taka á öllum þeim hlutum sem voru að plaga mig í lífinu. Það var mikið álag á mér," sagði Rodman en hann ætlar að fara í meðferðarstöðina á hálfs árs fresti  til þess að taka stöðuna á sjálfum sér.

"Ég þarf ekki að drekka. Ég þarfnast einskis. Ég fór í meðferð til þess að vinna í mínum málum. Ég er ekki alki og fór ekki í meðferð út af drykkjunni."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×