Bale með tvö mörk í stórsigri Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2014 20:30 Gareth Bale fagnar marki í kvöld Vísir/AFP
Gareth Bale skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Real Madrid vann 5-0 stórsigur á Rayo Vallecano í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og komst þar með aftur á sigurbraut með stæl. Real Madrid skoraði fjögur af mörkum sínum í seinni hálfleiknum. Real Madrid var búið að tapa tveimur deildarleikjum í röð á innan við viku og hafði fyrir vikið dottið niður í þriðja sæti deildarinnar eftir að hafa verið lengi í toppsætinu. Öll efstu liðin unnu sína leiki í dag og er Real Madrid því áfram þremur stigum á eftir toppliði Atlético Madrid og tveimur stigum á eftir Barcelona. Það eru eftir sjö leikir og spennan verður mikil allt til enda leiktíðarinnar. Cristiano Ronaldo kom Real Madrid í 1-0 á 15. mínútu eftir sendingu frá Gareth Bale og Ronaldo lagði síðan upp annað markið fyrir Daniel Carvajal eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Gareth Bale skoraði næstu tvö mörk en þau voru mjög ólík. Það fyrra skoraði hann af stuttu færi í tómt markið eftir frábæran undirbúning Angel di María. Seinna markið hjá Gareth Bale kom hinsvegar eftir magnaðan sprett hans frá eigin vítateig en hann hljóp alla varnarmenn Vallecano af sér og skoraði síðan af öryggi. Varamaðurinn Álvaro Morata skoraði fimmta markið á 78. mínútu með skoti úr teiginum etir sendingu frá Isco sem kom líka inná sem varamaður.
Spænski boltinn Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Hættur aðeins þrítugur Golf Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Fleiri fréttir Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira