Ólafur sleppur við bann og sekt

Ólafur sleppur því bæði við leikbann og fjársekt og getur tekið þátt í fjórða leik liðanna í Grindavík á morgun en Grindvíkingar verða að vinna leikinn til að koma í veg fyrir að KR-ingar tryggi sér Íslandsmeistaratitilinn.
Nefndin telur að líta beri til þess að kærði sá fljótt að sér og bað körfuknattleikshreyfinguna opinberlega afsökunar á ummælum sínum að eigin frumkvæði. Jafnframt hefur UMFG ávítt kærða fyrir ummæli hans. Í ljósi þessa telur aga og úrskurðarnefnd áminningu vera hæfilega refsingu gagnvart kærða, Ólafi Ólafssyni. Að sama skapi telur nefndin ekki tilefni til að beita UMFG sérstökum viðurlögum.
Það er hægt að sjá niðurstöðu Aga- og úrskurðarnefndarinnar hér fyrir neðan en allan dóminn má síðan nálgast með því að smella hér.
Niðurstaða
Eins og fyrir liggur í málinu lét kærði, Ólafur Ólafsson, eftirfarandi orð falla í viðtali í fjölmiðla eftir leik liðsins við KR 28. apríl s.l. „Við vorum eins og litlar fermingarstelpur á túr.“ Síðar sama dag baðst kærði opinberlega afsökunar á þessum ummælum.
Samkvæmt 14. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarnefnd KKÍ skal stjórn og framkvæmdastjóri KKÍ vísa til aga- og úrskurðarnefndar atvikum sem skaðað geta ímynd körfuknattleiks eða þeirra sem þátt taka í leiknum. Í ákvæðinu er vísað til þess að slík atvik hafi þá ekki komið fram í atvikaskýrslum dómara á leiknum en geti verið hvers kyns ósæmileg framkoma á leikstað eða á annan hátt opinberlega. Þá segir í ákvæðinu að þegar talað er um opinberlega er átt við allar tegundir
fjölmiðla; sjónvarpsmiðla, útvarpsmiðla, prentmiðla, netmiðla, heimasíður aðildarfélaga KKÍ og samfélagsmiðla. Ennfremur segir í n. lið 1. mgr. 13. gr. tilvísaðara reglugerðar að brot samkvæmt tilkynningu stjórnar KKÍ sbr. 14. gr. hafi í för með sér refsingu eftir eðli brotsins þ.á.m. áminningu, ávítur, sektir að fjárhæð kr. 50.000 og leikbann.
Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ tekur undir það með kæranda málsins að umrædd ummæli kærða
hafi verið ósæmileg og til þess fallin að skaða ímynd körfuknattleiks. Kærði hefur sjálfur sagt ummæli sín óvönduð og heimskuleg. Aftur á móti telur nefndin að líta beri til þess að kærði sá fljótt að sér og bað körfuknattleikshreyfinguna opinberlega afsökunar á ummælum sínum að eigin frumkvæði. Jafnframt hefur UMFG ávítt kærða fyrir ummæli hans. Í ljósi þessa telur aga og úrskurðarnefnd áminningu vera hæfilega refsingu gagnvart kærða, Ólafi Ólafssyni. Að sama skapi telur nefndin ekki tilefni til að beita UMFG sérstökum viðurlögum.
Tengdar fréttir

Ólafur biðst afsökunar á ummælum sínum
Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur í Dominos-deild karla í körfubolta, sér eftir ummælum sem hann lét falla eftir tap liðsins gegn KR í lokaúrslitum Íslandsmótsins í kvöld.

Bréf til KKÍ: Óásættanlegt ef Ólafur kemst upp með þessi ummæli
Síminn hefur vart stoppað hjá formanni KKÍ, Hannesi S. Jónssyni, síðan Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, lét ósmekkleg ummæli falla í sjónvarpsviðtali eftir leik Grindavíkur og KR í gær.

KKÍ fordæmir ummæli Ólafs: Málinu vísað til aganefndar
Körfuknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirra ummæla sem Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, lét falla eftir tap liðsins gegn KR í lokaúrslitum Dominos-deildarinnar í körfubolta í gærkvöldi.

Ólafur: Eins og við kunnum ekki að spila körfubolta
Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, var bálreiður eftir 29 stiga tap Íslands- og bikarmeistaranna gegn KR í þriðja leik lokaúrslita Íslandsmótsins í körfubolta í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Grindavík 87-58 | Grindvíkingar rassskelltir
KR er komið yfir á ný í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir að hafa rassskellt Grindavík 87-58 á heimavelli sínum í kvöld. KR leiðir einvígið 2-1.