
Virtir frumkvöðlar á sviði HIV-rannsókna voru um borð

Áströlsk dagblöð greindu frá því að allt að 108 þátttakendur á alþjóðlegu alnæmisráðstefnunni sem verður í Melbourne í næstu viku hafi verið um borð í MH17.
Á meðal þeirra sem hefur verið staðfest að var um borð er Joep Lange sem var mjög framarlega í rannsóknum á HIV veirunni var forseti International AIDS Society, að því er fram kemur á Vox.
Lange sem var prófessor í læknisfræði og yfirmaður alþjóðlegrar lýðheilsu hjá Háskólanum í Amsterdam hafði starfað við meðhöndlun á HIV og rannsóknum á sjúkdómnum frá 1983 um það leyti sem sjúkdómurinn og lokastig hans, alnæmi, var fyrst að koma fram. Lange var framarlega í því að finna lausnir til að tryggja meðhöndlun við sjúkdómnum í þriðja heiminum.
Dr. Martin S. Hirsch, prófessor við Harvard Medical School, segir að Lange hafi nálgast vandamál tengd meðhöndlun á HIV á rökréttan hátt og gert eitthvað í málunum. Fundið lausnirnar. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir hjá Embætti landlæknis segir að Lange hafi verið framarlega og ákveðinn frumkvöðull á sviði rannsókna á HIV. Hins vegar sé gríðarlegur fjöldi vísindamanna mjög framarlega í rannsóknum á þessu sviði.
Bretinn Glenn Thomas er annar sem er hefur verið staðfestur. Thomas starfaði fyrir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina. Hollensku aðgerðasinnarnir Pim de Kuijer og Martine de Schutter voru líka um borð en þau voru leiðandi í baráttunni gegn HIV og alnæmi á heimsvísu.
Bryndís Sigurðardóttir er smitsjúkdómalæknir á Landspítalanum. Bryndís sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að í stóra samhengi hlutanna hefði fráfall þeirra sem voru um borð ekki teljandi áhrif á stöðu rannsókna á HIV-veirunni þar sem þúsundir vísindamanna í fremstu röð sinntu rannsóknum á þessu sviði. Fyrst og fremst væri þetta mannlegur harmleikur fyrir þá sem létust þegar MH17 var skotin niður og aðstandendur þeirra.
Tengdar fréttir

Loka lofthelgi austur Úkraínu
Evrópska flugumferðarstofnunin Eurocontrol segir að yfirvöld í Kænugarði hafi lokað lofthelginni yfir austurhluta landsins.

Þraukar Malaysia Airlines?
Vöngum er velt yfir framtíð flugfélagsins og líklegu gjaldþroti þess.

Enn fjölgar í hópi látinna Hollendinga
189 Hollendingar hið minnsta létust þegar MH17 var skotin niður í Úkraínu í gær. Enn á eftir að ákvarða þjóðerna fjögurra farþega.

Leggja niður vopn í tvo til fjóra daga
Einn leiðtoga aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu hefur heitið því að þeir muni leggja niður vopn í tvo til fjóra daga vegna árásarinnar á MH17 í gær.

Myndskeið fangar síðustu andartökin um borð í MH17
Farþegi á leið til Malasíu birti myndskeið á netinu stuttu áður en flugvélin var skotin niður.

Þjóðarleiðtogar votta samúð sína vegna malasísku flugvélarinnar
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, segir aðskilnaðarsinna í skjóli Rússa bera ábyrgð á ástandinu.

Pútín og Merkel hvetja til vopnahlés í Úkraínu
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hvetur nú bæði úkraínska stjórnarherinn og aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu til að leggja niður vopn og hefja friðarviðræður sem fyrst.

Missti fjölskyldumeðlimi í báðum slysum Malaysia Airlines
Kona frá Ástralíu hefur missti bróður sinn í hvarfi MH 370 í suður Indlandshafi og stjúpdóttir í MH 17 sem skotin var niður yfir Úkraínu í gær.

Tæknilega fullkomið Buk-eldflaugakerfi grandaði MH17
Flókið og tæknilega fullkomið Buk-eldflaugakerfi var notað til að granda MH17 vél Malaysian Airlines. Úkraínsk stjórnvöld saka rússneska aðskilnaðarsinna um að hafa fjarlægt mikilvæg sönnunargögn á staðnum þar sem vélin var skotin niður með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.

Fjölmargir starfsmenn WHO voru um borð í vélinni
Um hundrað farþega í MH17 voru á leið á rástefnu um alnæmi sem haldin er í Ástralíu.

Öryggisráð SÞ vill rannsókn óháðra aðila
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í dag vegna harmleiksins í Úkraínu.

Gerði grín að flugslysinu
„Vill einhver kaupa flugpunktana mína hjá Malaysia Airlines?“

Þjóðarsorg í Hollandi
Hollendingar eru í áfalli vegna dauða 173 Hollendinga sem fórust þegar MH17 var skotin niður í austurhluta Úkraínu í gær.

Harmleikurinn í Úkraínu
Flugvélin var af gerðinni Boeing 777 á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur þegar hún hvarf af ratsjám. 298 týndu lífi.