Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur í Stykkishólmi, segir Kröflumynstrið komið í Bárðarbungu. Þar með tekur hann undir mat Páls Einarssonar prófessors, sem fyrstur benti á þetta í fréttum Stöðvar 2 fyrir rúmri viku.
„Ég hef verið að bíða eftir því að sjá Kröflumynstrið um breytingar á landhæð í Bárðarbungu. Nú virðist það ef til vill vera komið,“ segir Haraldur á bloggi sínu í morgun.
„Þegar Kröflueldar geisuðu, frá 1975 til 1984, þá var eitt höfuð einkenni þeirra að land innan öskjunnar og umhverfis reis hægt og rólega í nokkrar vikur eða mánuði,“ segir Haraldur.
„Siginu fylgdu skyndileg kvikuhlaup neðanjarðar og á stundum lítil sprungugos á yfirborði. Krafla orsakaði byltingu í skilningi okkar á virkni íslenskra eldstöðva, eins og Páll Einarsson hefur bent á. Í dag rakst ég loks á gögn frá GPS mælum umhverfis Bárðarbungu, sem sýna svipað mynstur og Krafla gerði.“
„Risið er að öllum líkindum tengt streymi kviku úr djúpinu og upp í grunna kvikuþró undir öskjunni. Þegar vissri hæð, eða vissum þrýstingi er náð í kvikuþrónni, þá hleypur kvikan út í ganginn og askjan sígur.“
Haraldur segir loks í grein sinni:
„GPS mælingarnar verða því mikilvægar til að meta hegðun gangsins. Búast má við að lítið gerist í ganginum á meðan landris er hægt og stöðugt, þar til landris nær krítískri hæð. Þá verður kvikuhlaup úr þrónni undir öskjunni og inn í ganginn, sem getur valdið því að gangurinn rýkur áfram norður í gegnum jarðskorpuna – eða gýs.“
Segir Kröflumynstrið komið í Bárðarbungu

Tengdar fréttir

Líkist æ meir kvikuinnskoti sem ekki nái til yfirborðs
Atburðarásin í Bárðarbungu minnir mjög á Kröfluelda, segir Páll Einarsson prófessor, og telur þetta geta verið upphafið að margra ára ferli, en segir þó minnkandi líkur á að eldgos sé yfirvofandi.