„Þetta er high-risk svæði þannig að það er algjör slóðaháttur að yfirvöld hafi ekki tekið sig saman í andlitinu og komið þessu í lag,“ segir Erlendur Garðarsson.
Erlendur er sumarbústaðaeigandi í Kelduhverfi norðan Jökulsárgljúfurs. Íbúar og sumarbústaðaeigendur á svæðinu hafa fengið sig full sadda af slæmu fjarskiptasambandi á svæðinu.
„Síðan turninn féll í vetur hafa eiginlega útvarpssendingar Ríkisútvarpsins horfið,“ segir Erlendur. Hann sjálfur er staddur á höfuðborgarsvæðinu en hugsar til félaga sinna á svæðinu.
„Ég var að hlusta á Rás 2 áðan þar sem fólk í Kelduhverfinu var hvatt til þess að fylgjast vel með fréttum og leiðbeiningum á RÚV,“ segir Erlendur. Það sé sérstaklega fyndið en þó ekki í ljósi þess að fólk nær ekki RÚV. Bylgjan sé í raun og veru eina útvarpsstöðin sem náist á svæðinu og fólk treysti á.
„Við í Kelduhverfinu erum búin að tala við allt frá kóngi til prests. Einu svörin sem maður fær er að senda tölvupóst,“ segir Erlendur. Hann minnir á að Kelduhverfið sé jarðskjálftasvæði auk þess sem bæði sé hætta á eldgosi og hlaupi í Jökulsá á fjöllum.
„Ég hef sjálfur hringt í RÚV, Símann og Póst- og fjarskiptastofnun. Svörin sem maður fær er bara úps,“ segir Erlendur. „Eini almennilegi maðurinn sem ég hef talað við er útvarpsstjóri sem lofaði að skoða þetta á næstu mánuðum.“
Erlendur telur að rétt undir hundrað manns séu með fasta búsetu á svæðinu. Auk þess er fjöldi fólks með sumarbústaði og afdrep yfir sumartímann.
„Þetta snýst ekki bara um skemmtun heldur er þetta algjört öryggisatriði. Nú reynir á þetta og manni verður bilt við hérna fyrir sunnan þar sem fólk í Kelduhverfinu, sem nær ekki Rás 2, er hvatt til að hlusta á Rás 2.“
Uppfært klukkan 17:27
Í tilkynningu frá RÚV er fullyrt að langbylgja RÚV náist á svæðinu.
Hugsar til félaga sinna í Kelduhverfinu
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
![](https://www.visir.is/i/EE349FC654640DB69FE66EA023E57063E5F2DC48FE9B4819BD0CAD472018E12B_713x0.jpg)