Breytt mynstur í Bárðarbungu? Kristján Már Unnarsson skrifar 21. ágúst 2014 12:45 Kort frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Rauða línan táknar 25 kílómetra langan berggang sem talinn er vera að myndast undir jöklinum.
Vísbending kom fram í gær um breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingum í Bárðarbungu. Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur segir of snemmt að segja til um hvort þetta sé merki um að hámarki hræringanna sé náð. Jarðvísindamenn tóku eftir því í gær á gps-mælum að færsluhreyfingar til norðvesturs stöðvuðust, sem vakti spurningar um hvort innrennsli kviku væri að minnka. Á móti kom að hreyfingar héldu áfram til suðausturs. „Það er reyndar vísbending um aðeins breytt mynstur í jarðskorpuhreyfingunum við jökuljaðarinn," segir Freysteinn. „En við þurfum að sjá hvernig það þróast betur og þar sem erfitt að túlka þetta, - þetta er langt frá, það er ákveðin óvissa, - þá er mitt mat að líklegast sé að atburðarásin sé kannski enn um sinn með svipuðum krafti og áður." - En gæti þetta verið fyrsta vísbending um að þetta sé búið að ná hámarki?Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.Stöð 2/Raggi.„Það er of snemmt að segja til um það. Það eru einkenni á þessari virkni að það eru sveiflur, bæði í fjölda jarðskjálfta og hvernig þessar jarðskorpuhreyfingar eru. Það er einmitt ástæða þess að það er verið að setja upp fleiri mælitæki, jarðskjálftamæla og gps-mæla, til að geta fylgst betur með þessu." Freysteinn segir reynsluna frá Kröflueldum þá að svona atburðir geti dregist mjög á langinn. „Þannig að það er ekkert á vísan að róa með það. Við verðum bara að halda viðbúnaði. Við verðum að vakta eldstöðina eins vel og hægt er og reyna að túlka jafnharðan það sem við sjáum," segir Freysteinn Sigmundsson.
Bárðarbunga Tengdar fréttir Rýmingu lokið - TF SIF flaug yfir jökulinn Rýmingu af hálendinu norðan Dyngjujökuls, þar sem Almannavarnir lýstu yfir hættuástandi í gær, lauk upp úr miðnætti, en eitthvað á annað hundrað manns voru á svæðinu í gær. Þar á meðal voru þeir sem dvöldu í skálum í Dreka og í Kverkfjöllum. Lögregla naut aðstoðar björgunarsveitarmanna við verkið og að koma upp skiltum um lokanir á vegum. 20. ágúst 2014 06:58 Skjálftinn var 4,5 stig Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa endurmetið stærð stóra skjálftans sem varð í Bárðarbungu í nótt. 18. ágúst 2014 21:45 Viðbúnaðarstig áfram appelsínugult Ákveðið hefur verið að breyta ekki viðvörunarstigi fyrirflugmálayfirvöld vegna jarðhræringanna í og við Bárðarbungu. 19. ágúst 2014 13:36 Víðtækar lokanir á hálendinu Vísindaráð almannavarna telur að að kvika sé á hreyfingu austan við Bárðarbungu við jökuljaðar Dyngjujökuls. 18. ágúst 2014 20:06 Mjög öflugur atburður, kvikan færi hratt upp Atburðarásin í Bárðarbungu nú er margfalt öflugri en sú sem varð í aðdraganda Gjálpargossins árið 1996. 20. ágúst 2014 11:51 Kvika talin streyma inn í eldstöðina af miklu afli Almannavarnir lýstu í kvöld yfir hættustigi norðan Dyngjujökuls og hafa ákveðið að hálendið þar verði rýmt. Mikið magn kviku er talið streyma upp í Bárðarbungueldstöðina. 19. ágúst 2014 20:00 Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar. 20. ágúst 2014 18:30 Brýrnar gætu sópast burt og Dettifoss sorfist niður Hrinan í Bárðarbungu er mjög öflug og full ástæða til að gera ráð fyrir eldgosi, að mati sérfræðings Veðurstofu Íslands. Viðvörun gagnvart alþjóðaflugi var í dag sett á næstefsta stig. 18. ágúst 2014 19:30 Hratt kvikuflæðið á við hálfa Þjórsá Hraunelfan sem streymir úr iðrum Bárðarbungu er að umfangi álíka og flæði hálfrar Þjórsár og hefur þegar myndað 25 kílómetra langan berggang undir Vatnajökli. 20. ágúst 2014 19:15 Þrívíddarkort af skjálftavirkni í Bárðarbungu Veðurstofa Íslands hefur unnið myndband sem sýnir skjálftavirknina í Bárðarbungu á tímabilinu 16.-20. ágúst. 20. ágúst 2014 17:26 Mest lesið Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Innlent „Við erum engir rasistar“ Innlent Rigning í dag og svo von á júníhreti Veður Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Innlent Fleiri fréttir Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Nikótínþurfi guðsbarn braust inn í Bjarnabúð „Ef fram heldur sem horfir verður Aþena lögð niður í næstu viku“ Stimpingar milli mótmælenda á Austurvelli Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Tíundi hver með ágætiseinkunn í MR Engin smithætta vegna veikinda í vélinni Segir Viðskiptablaðið og Samstöðina fara rangt með mál um Ásthildi Lóu Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Tvenn mótmæli í Reykjavík og herþota á flugsýningu „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Missa fatamarkaðinn með flutningi Konukots í Ármúla Sjá meira
Rýmingu lokið - TF SIF flaug yfir jökulinn Rýmingu af hálendinu norðan Dyngjujökuls, þar sem Almannavarnir lýstu yfir hættuástandi í gær, lauk upp úr miðnætti, en eitthvað á annað hundrað manns voru á svæðinu í gær. Þar á meðal voru þeir sem dvöldu í skálum í Dreka og í Kverkfjöllum. Lögregla naut aðstoðar björgunarsveitarmanna við verkið og að koma upp skiltum um lokanir á vegum. 20. ágúst 2014 06:58
Skjálftinn var 4,5 stig Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa endurmetið stærð stóra skjálftans sem varð í Bárðarbungu í nótt. 18. ágúst 2014 21:45
Viðbúnaðarstig áfram appelsínugult Ákveðið hefur verið að breyta ekki viðvörunarstigi fyrirflugmálayfirvöld vegna jarðhræringanna í og við Bárðarbungu. 19. ágúst 2014 13:36
Víðtækar lokanir á hálendinu Vísindaráð almannavarna telur að að kvika sé á hreyfingu austan við Bárðarbungu við jökuljaðar Dyngjujökuls. 18. ágúst 2014 20:06
Mjög öflugur atburður, kvikan færi hratt upp Atburðarásin í Bárðarbungu nú er margfalt öflugri en sú sem varð í aðdraganda Gjálpargossins árið 1996. 20. ágúst 2014 11:51
Kvika talin streyma inn í eldstöðina af miklu afli Almannavarnir lýstu í kvöld yfir hættustigi norðan Dyngjujökuls og hafa ákveðið að hálendið þar verði rýmt. Mikið magn kviku er talið streyma upp í Bárðarbungueldstöðina. 19. ágúst 2014 20:00
Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar. 20. ágúst 2014 18:30
Brýrnar gætu sópast burt og Dettifoss sorfist niður Hrinan í Bárðarbungu er mjög öflug og full ástæða til að gera ráð fyrir eldgosi, að mati sérfræðings Veðurstofu Íslands. Viðvörun gagnvart alþjóðaflugi var í dag sett á næstefsta stig. 18. ágúst 2014 19:30
Hratt kvikuflæðið á við hálfa Þjórsá Hraunelfan sem streymir úr iðrum Bárðarbungu er að umfangi álíka og flæði hálfrar Þjórsár og hefur þegar myndað 25 kílómetra langan berggang undir Vatnajökli. 20. ágúst 2014 19:15
Þrívíddarkort af skjálftavirkni í Bárðarbungu Veðurstofa Íslands hefur unnið myndband sem sýnir skjálftavirknina í Bárðarbungu á tímabilinu 16.-20. ágúst. 20. ágúst 2014 17:26