Þingmálin hrúgast inn Aðalsteinn Kjartansson skrifar 15. september 2014 11:13 Þingmenn vilja ólmir leggja fram mál á þingi. Fæstir fá þó málin sín afgreidd. Vísir / Stefán
Þegar hafa verið lögð fram 29 lagafrumvörp á Alþingi en aðeins nokkrir dagar eru liðnir frá þingsetningu. Langflest frumvörpin, eða 28 talsins, bíða enn fyrstu umræðu. Aðeins er búið að ræða um fjárlagafrumvarpið en það er komið í nefnd.Margir vilja ályktaEinnig er búið að leggja fram 22 þingsályktunartillögur en engin þeirra hefur verið rædd. Flest frumvörpin og ályktanirnar koma frá óbreyttum þingmönnum en erfiðlega gengur að jafnaði að koma slíkum málum í gegnum þingið. Líklega munu flest þessara mála daga uppi. Meðal þingsályktana sem fram hafa komið er ályktun um umferðarljósamerkingar á matvæli og önnur um aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigðisþjónustu. Einnig er búið að leggja fram ályktunartillögu um að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Norður-Atlantshafsbandalaginu fari fram.Ekki ástæða til bjartsýniEngin þingmannafrumvörp eru komin á dagskrá þingsins en þingfundur dagsins í dag fer í óundirbúinn fyrirspurnartíma, tvær sérstakar umræður og svo fjögur mál frá innanríkisráðherra. Tölfræði frá síðasta vetri gefa þingmönnum ekki ástæðu til að vera bjartsýnir á að mál þeirra nái fram að ganga. Af 172 frumvörpum voru 91 samþykkt sem lög, þar af voru 74 frá ríkisstjórn, 13 frá nefndum og 4 frá þingmönnum en af 112 tillögum til þingsályktunar voru 49 samþykktar sem ályktanir Alþingis, 20 frá ríkisstjórn, 7 frá nefndum og 22 frá þingmönnum, samkvæmt upplýsingum á vef Alþingis.
Alþingi Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Fleiri fréttir Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Sjá meira