Dortmund með fleiri stig í Meistaradeildinni en þýsku deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2014 19:30 Jürgen Klopp þjálfari Borussia Dortmund með leikmanninum Pierre-Emerick Aubameyang. Vísir/Getty
Borussia Dortmund er í slæmum málum í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið hefur aðeins náð í ellefu stig í fyrstu þrettán leikjum tímabilsins og situr fyrir vikið í botnsæti deildarinnar. Á sama tíma hefur Borussia Dortmund gengið vel í Meistaradeildinni þar sem liðið hefur þegar tryggt sér sæti í sextán liða úrslitunum. Dortmund vann fjóra fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni en tapaði reyndar síðasta leik sínum á móti Arsenal. Dortmund var eitt fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni. Borussia Dortmund er því með tólf stig í fimm leikjum í Meistaradeildinni á leiktíðinni eða stigi meira en liðið hefur náð að safna í átta fleiri leikjum í deildinni heima fyrir. Borussia Dortmund vann tvo af fyrstu þremur deildarleikjum sínum en hefur síðan aðeins unnið einn leik og náð í fimm stig af 30 mögulegum. Síðan liðið spilaði fyrsta leikinn sinn í Meistaradeildinni 16. september hefur Dortmund aðeins unnið einn af leik af tíu í þýsku deildinni og bara náð að skora átta mörk. Fjórir af fimm síðustu sigurleikjum Dortmund-liðsins og 13 af 21 marki liðsins frá 15. september hafa því komið í Meistaradeildinni. Borussia Dortmund í þýsku deildinni 2014-15: 13 leikir 3 sigrar, 2 jafntefli, 8 töp Markatalan: -7 (14-21) 11 stigBorussia Dortmund í Meistaradeildinni 2014-15: 5 leikir 4 sigrar, 0 jafntefli, 1 tap Markatalan: +10 (13-3) 12 stig
Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira