Á sumardaginn fyrsta fóru fram tökur á nýju vídeóverki Snorra Ásmundssonar, „Hatikva“.
„Tökur tókust glimrandi vel en ég var með eintóma snillinga með mér í öllum hlutverkum. Ég fékk til dæmis Birgi Gíslason sem hefur áður verið með í gjörningi með mér og vin hans, Björgvin, til að leika rétttrúnaðargyðinga,“ segir Snorri, en Birgir hefur starfað mikið með Snorra.
„Svo kemur Auður Ómarsdóttir fram í gervi múslima og Rebekka Moran í gervi kúrekastelpu. Svo er Árni Grétar íklæddur leðurfrakka og með Davíðsstjörnuna um arminn,“ segir Snorri um verkið.
Hatikva er nafn á þjóðsöng Ísraels.
„Ég syng dansútgáfu af laginu á hebresku í gervi Dönu International sem vann Eurovision-keppnina 1998 fyrir hönd Ísraels,“ útskýrir Snorri.
Marteinn Thorsson sá um myndatöku og tónlistina útsetti Árni Grétar, betur þekktur sem Futuregrapher.
„Ég er búinn að vera með þetta verk í maganum í tvö ár svo það varð spennufall þegar ég lauk því loksins í gær. Ég frumsýni verkið í lok maí í 21der Haus, nútímalistasafni Vínarborgar,“ segir Snorri jafnframt, en hann fékk styrk úr Myndlistarsjóði fyrir verkinu.
Enn hafa ekki verið ákveðnar sýningar á verkinu hér á landi.
„Verkið hefur þegar vakið umtal og áhugi er víða og verður tónlistin meðal annars gefin út á vinýl í Belgíu. En ég tek fulla ábyrgð á þessu verki og geri mér grein fyrir að það á eftir að hreyfa við mörgum enda má sjá ádeilu í því þótt gleðin ráði ríkjum.“
Gyðingar og dragdrottningar í nýju videoverki Snorra Ásmundssonar
