„Skyndibiti þarf ekki að vera ógeðslegur. Ég er skyndibitafíkill en skyndibiti hefur mjög neikvæða merkingu á Íslandi. Sumir leggja ást og alúð í skyndibitann sinn. Þetta er ekki alltaf bara örbylgjuhituð Sóma-samloka,“ segir tónlistar- og dagskrárgerðarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson. Nýir þættir með honum, Sósa og salat, hefja göngu sína á Stöð 2 í byrjun september. Í þáttunum ferðast Friðrik á milli skyndibitabúlla á landinu.
„Ég fylgist með matreiðslunni og fjalla um hvern stað og hans sögu. Þetta er ekki matreiðsluþáttur þar sem ég hvet fólk til að elda í eldhúsinu heima. Ég vona frekar að áhorfendur vilji heimsækja þessa staði eftir þáttinn, fái vatn í munninn og grilli sér jafnvel samloku,“ bætir Friðrik við.
Fimm þættir eru í þáttaröðinni og er viðfangsefnið staðir á suðvesturhorni Íslands. Verður þá framhald með öðrum landshlutum?
„Það er aldrei að vita,“ segir Friðrik dulur.
Hann óttast ekki að bæta á sig við gerð þáttanna.
„Ég er spikfeitur nú þegar og líður ágætlega þannig að ég er slakur.“
„Ég er spikfeitur nú þegar og líður ágætleg"
