Körfubolti

Jón Arnór stigahæstur í sigri Unicaja

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Jón Arnór var magnaður í kvöld
Jón Arnór var magnaður í kvöld vísir/heimasíða kkí
Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur þegar Malaga Unicaja lagði Fiatc Joventut 81-77 í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Jón Arnór skoraði 16 stig í leiknum og var áberandi hjá liði sínu á loka mínútunum þegar Unicaja tryggði sér sigurinn eftir jafnan leik.

Unicaja var 49-39 yfir í hálfeik en seinni hálfleikur var mjög spenanndi. Unicaja er á toppi deildarinnar með 17 sigra í 20 leikjum. Joventut hefur unnið 14 leiki og tapað sex.

Auk þess að skora 16 stig tók Jón Arnór 3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu en Jón hitti úr 3 af 4 tveggja stiga skotum sínum í leiknum, 2 af 3 þriggja stiga skotum og öllum fjórum vítum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×