Körfubolti

Martin bestur hjá Brooklyn í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Martin spilaði vel í dag.
Martin spilaði vel í dag. Vísir/Getty
Martin Hermannsson átti virkilega góðan leik fyrir LIU Brooklyn sem vann St. Francis í bandaríska háskólakörfuboltanum í dag, en lokatölur eftir framlengingu 79-74.

Staðan var 32-31 í hálfleik og svo jöfn 67-67 eftir venjulegan leiktíma.

Í framlengingu reyndust Brooklyn-menn sterkari og lokatölur 79-74.

Martin spilaði afar vel og skoraði þrettán stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Elvar Friðriksosn skoraði ellefu stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×