Handbolti

Fimm mörk frá Atla í stórsigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atli Ævar.
Atli Ævar. Vísir/Aðsend
Atli Ævar Ingólfsson skoraði fimm mörk í sigri Guif á króatíska liðinu RK Nexe í Evrópubikarnum í handbolta í dag, 33-24.

Svíarnir voru mun sterkari og leiddu meðal annars með fimm mörkum í hálfleik 17-12.

Í síðari hálfleik var sama uppá teningnum og lokatölur urðu níu marka sigur Guiff, 33-24.

Atli ævar spilaði vel og var þriðji markahæstur hjá Guif með fimm mörk. Markaskorun dreifðist vel og alls skoruðu níu leikmenn eitt mark eða meira.

Aron Rafn Eðvarðsson stóð í marki Guif, en ekki kemur fram hversu mörg skot hann hefur varið. Kristján Andrésson þjálfar Guif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×