Handbolti

Sunna og Hildigunnur fá oddaleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Sunna Jónsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir BK Heid er liðið tryggði sér oddaleik í 8-liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með sigri á Skuru IK, 31-28.

Heid var með fimm marka forystu í hálfleik, 15-10, og hélt undirtökunum allt til loka. Hildigunnur Jónsdóttir var í liði Heid en skoraði ekki í kvöld. Oddaleikurinn fer fram í næstu viku.

Það var einnig spilað í karladeildinni í kvöld. Ricoh stendur vel að vígi í umspilskeppnini um sæti í úrvalsdeildinni en liðið hafði betur gegn Västerås í kvöld, 26-22. Tandri Már Konráðsson skoraði þrjú mörk fyrir Ricoh.

Ricoh er efsta sæti keppninnar, sem telur sex lið, að loknum fjórum umferðum. Liðið er með sex stig, rétt eins og HK Aranäs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×